Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Dómsmálaráðuneytið

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar, Lögreglumál, Peningaþvætti, Fangelsismál, Hryðjuverk, Hegningarlög

Undirritunardagur

20. nóvember 2025

Útgáfudagur

27. nóvember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 77/2025

20. nóvember 2025

LÖG

um breytingu á lögum um meðferð sakamála, lögreglulögum, almennum hegningarlögum, lögum um fullnustu refsinga, lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og lögum um innheimtu opinberra skatta og gjalda (upptaka fjárhagslegs ágóða af brotum o.fl.).

Handhafar valds forseta Íslands
  samkvæmt 8. gr. stjórnarskrárinnar
forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar,
gjöra kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og vér staðfest þau með samþykki voru:

I. KAFLIBreyting á lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008.

1. gr.

Á eftir 1. mgr. 55. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:

Fjármálafyrirtækjum og öðrum sambærilegum þjónustuveitendum er skylt að láta ákæranda í té, komi fram krafa þess efnis, upplýsingar eða gögn, án gjalds og í því formi sem óskað er, þótt þau séu háð þagnarskyldu, enda megi ætla að upplýsingarnar eða gögnin hafi sönnunargildi við rannsókn sakamáls.

2. gr.

Í stað orðanna „eða að þeir kunni að verða gerðir upptækir“ í 1. málsl. 1. mgr. 68. gr. laganna kemur: þeir kunni að verða gerðir upptækir eða settir til tryggingar greiðslu sektar eða sakarkostnaðar.

3. gr.

Við 88. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 21. gr. laga um kyrrsetningu, lögbann o.fl., nr. 31/1990, víkur kyrrsetning skv. 1. mgr. ekki fyrir fjárnámi í kyrrsettri eign.

II. KAFLIBreyting á lögreglulögum, nr. 90/1996.

4. gr.

4. mgr. 8. gr. laganna orðast svo:

4. Héraðssaksóknari skal starfrækja einingu sem vinnur að endurheimt og upptöku ávinnings af hvers kyns refsiverðri háttsemi og hefur umsjón með haldlögðum, kyrrsettum og upptækum eignum og munum í samræmi við reglur sem ráðherra setur. Í því skyni skal einingin hafa gagnkvæmt samstarf við önnur lögregluembætti og stjórnvöld.

III. KAFLIBreyting á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940.

5. gr.

1. mgr. 69. gr. laganna orðast svo:

Gera má upptækan ávinning af broti og muni sem keyptir eru fyrir ávinninginn eða komið hafa í stað hans. Jafnframt má gera upptæka fjárhæð eða önnur haldlögð verðmæti eða dæma viðkomandi til greiðslu fjárhæðar sem svarar til ávinnings í heild eða að hluta. Þegar ekki er unnt að færa fullar sönnur á fjárhæð ávinnings er heimilt að áætla fjárhæðina.

6. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 69. gr. b laganna:

  1. Við 2. tölul. 1. mgr. bætist: eða varðar refsingu skv. 175. gr. a.
  2. Á eftir orðinu „fjárhæð“ í 5. mgr. kemur: eða dæma viðkomandi til greiðslu fjárhæðar.

7. gr.

5. mgr. 69. gr. d laganna fellur brott.

8. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 69. gr. f laganna:

  1. 3. mgr. fellur brott.
  2. Í stað orðanna „má þá gera þau upptæk“ í 4. mgr. kemur: renna þau þá í ríkissjóð.

9. gr.

Á eftir 69. gr. g laganna kemur ný grein, 69. gr. h, svohljóðandi:

Ef ekki er vitað hver hefur gerst brotlegur, hver er eigandi eða handhafi eigna eða réttinda eða viðkomandi er látinn eða hefur ekki þekktan dvalarstað hér á landi má beita upptöku án þess að nokkur sé ákærður með úrskurði skv. XXVII. kafla laga um meðferð sakamála.

IV. KAFLIBreyting á lögum um fullnustu refsinga, nr. 15/2016.

10. gr.

Við 92. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Um innheimtu upptækra fjármuna skv. VII. kafla A almennra hegningarlaga fer eftir 1. mgr. 87. gr.

11. gr.

Í stað orðanna „og sakarkostnað“ í 1. mgr. 93. gr. laganna kemur: sakarkostnað og upptæka fjármuni.

12. gr.

Í stað orðanna „rannsókn hófst“ í 1. mgr. 94. gr. laganna kemur: málinu lýkur.

V. KAFLIBreyting á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 140/2018.

13. gr.

3. mgr. 37. gr. a laganna orðast svo:

Starfsmenn skrifstofu fjármálagreininga lögreglu og eftirlitsaðila samkvæmt lögum þessum skulu hafa aðgang að skránni í þeim tilgangi að uppfylla skyldur sínar samkvæmt lögunum. Þá skulu starfsmenn annarra stjórnvalda hafa aðgang að skránni til að sinna lögbundnu hlutverki sínu við að koma í veg fyrir, koma upp um, rannsaka eða saksækja fyrir brot sem varða peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

IV. KAFLIBreyting á lögum um innheimtu opinberra skatta og gjalda, nr. 150/2019.

14. gr.

Við 3. mgr. 14. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 21. gr. laga um kyrrsetningu, lögbann o.fl., nr. 31/1990, víkur kyrrsetning skv. 1. mgr. ekki fyrir fjárnámi í kyrrsettri eign.

15. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi.

Gjört í Reykjavík, 20. nóvember 2025.

Kristrún Frostadóttir.

Þórunn Sveinbjarnardóttir.

(L. S.)

Sigurður Tómas Magnússon.

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.

A deild — Útgáfudagur: 27. nóvember 2025

Tengd mál