Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Sjóðir og stofnanir, Fjármálastarfsemi
Undirritunardagur
2. desember 2025
Útgáfudagur
10. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 82/2025
2. desember 2025
LÖG
um breytingu á lögum um evrópska langtímafjárfestingarsjóði, nr. 115/2022 (einföldun).
Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:
- 1. mgr. orðast svo:
Ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/760 frá 29. apríl 2015 um evrópska langtímafjárfestingarsjóði, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 37 frá 27. maí 2021, bls. 1–24, með þeim breytingum sem leiðir af reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/606 frá 15. mars 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) 2015/760 að því er varðar kröfur um fjárfestingarstefnu og rekstrarskilyrði evrópskra langtímafjárfestingarsjóða og gildissvið hæfra fjárfestingareigna, kröfur um samsetningu og fjölbreytileika eignasafna og lántöku í reiðufé og aðrar sjóðsreglur, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 42 frá 3. júlí 2025, bls. 823–845, skulu hafa lagagildi hér á landi með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 19/2020 frá 7. febrúar 2020, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 13 frá 16. febrúar 2023, bls. 41–42, ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 118/2025 frá 8. maí 2025, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 46 frá 24. júlí 2025, bls. 41–42, og bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, þar sem bókunin er lögfest. - Á eftir 6. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Með vísun til endurtryggingafélags skv. 4. tölul. 13. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB í ca-lið 7. tölul. 2. gr. reglugerðar (ESB) 2015/760 er átt við endurtryggingafélag samkvæmt lögum um vátryggingastarfsemi. - Á eftir 7. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Með vísun til samstæðu skv. 11. tölul. 2. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2013/34/ESB í lið 14b 2. gr. reglugerðar (ESB) 2015/760 er átt við samstæðu samkvæmt lögum um ársreikninga. - Á eftir 11. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Með vísun til áhættusams þriðja lands skv. 2. mgr. 9. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849 í i-lið c-liðar 1. mgr. 11. gr. reglugerðar (ESB) 2015/760 er átt við áhættusöm ríki samkvæmt lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. - Í stað tilvísunarinnar „7. mgr.“ í 12. mgr. kemur: 6. mgr.
- 14. mgr. fellur brott.
- Á eftir 14. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Með vísun til krafna skv. 2.–5. og 7. undirgrein 3. mgr. 16. gr. og 2. mgr. 24. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2014/65/ESB í 27. gr. reglugerðar (ESB) 2015/760 er átt við kröfur skv. 22. gr. og 2. og 3. mgr. 33. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021. - Við bætast þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Með vísun til hæfismats skv. 2. mgr. 25. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2014/65/ESB í 1. mgr. 30. gr. reglugerðar (ESB) 2015/760 er átt við mat á hæfi skv. 44. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021.
Með vísun til yfirlýsingar um hæfi skv. 2. og 3. undirgrein 6. mgr. 25. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2014/65/ESB í 1. mgr. 30. gr. reglugerðar (ESB) 2015/760 er átt við yfirlýsingu um hæfi skv. 3. og 4. mgr. 46. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021.
Með vísun til skráahalds skv. 5. mgr. 25. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2014/65/ESB í 1. mgr. 30. gr. reglugerðar (ESB) 2015/760 er átt við skrá skv. 1. mgr. 46. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 7. gr. laganna:
- 11. og 13. tölul. falla brott.
- Í stað orðanna „innra matsferli“ í 12. tölul. kemur: kröfur til innri ferla.
- 15. tölul. orðast svo: 30. gr. um sérstakar kröfur vegna markaðssetningar og sölu til almennra fjárfesta.
3. gr.
5. tölul. 1. mgr. 13. gr. laganna orðast svo: 30. gr. um sérstakar kröfur vegna markaðssetningar og sölu til almennra fjárfesta.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 15. gr. laganna:
- 2. tölul. orðast svo: 6. mgr. 18. gr. um við hvaða aðstæður líftími evrópsks langtímafjárfestingarsjóðs telst samrýmanlegur við lífsferla hverrar einstakrar eignar sjóðsins, um viðmiðanir fyrir ákvörðun lágmarkseignarhaldstímabils, um lágmarksupplýsingar sem veita ber lögbæru yfirvaldi evrópsks langtímafjárfestingarsjóðs, um kröfur sem evrópskur langtímafjárfestingarsjóður þarf að uppfylla með tilliti til innlausnarstefnu og lausafjárstýringartækja og viðmiðanir fyrir mat á hlutfalli að teknu tilliti til m.a. vænts sjóðstreymis og skuldbindinga evrópska langtímafjárfestingarsjóðsins.
- Á eftir 2. tölul. kemur nýr töluliður, svohljóðandi: 5. mgr. 19. gr. um aðstæður fyrir notkun pörunar, þ.m.t. þær upplýsingar sem evrópskir langtímafjárfestingarsjóðir þurfa að veita fjárfestum.
- Á eftir 3. tölul. kemur nýr töluliður, svohljóðandi: 3. mgr. 25. gr. um sameiginlegar skilgreiningar, útreikningsaðferðir og framsetningarsnið kostnaðar og heildarhlutfall kostnaðar.
- 4. tölul. fellur brott.
5. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
6. gr.
Við gildistöku laga þessara verður eftirfarandi breyting á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, nr. 45/2020: 2. málsl. 1. mgr. 65. gr. a laganna fellur brott.
Gjört á Bessastöðum, 2. desember 2025.
Halla Tómasdóttir.
(L. S.)
Daði Már Kristófersson.
A deild — Útgáfudagur: 10. desember 2025