Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Akureyrarbær

Málaflokkur

Skipulagsmál, Akureyri

Undirritunardagur

10. júlí 2026

Útgáfudagur

10. júlí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 798/2026

10. júlí 2026

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Akureyrarbæ.

Breyting á deiliskipulagi Innbæjarins.

Skipulagsráð Akureyrarbæjar samþykkti 8. júlí 2026 breytingu á deiliskipulagi Innbæjarins.

Breytingin tekur til lóðar Hafnarstrætis 53 og felur í sér stækkun byggingarreits til norðurs og breytingu á nýtingarhlutfalli vegna hjólaskýlis.

Skipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og var ekki talin þörf á grenndarkynningu, sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

Akureyri, 10. júlí 2026.

F.h. Akureyrarbæjar,

Steinunn Karlsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála.

B deild — Útgáfudagur: 10. júlí 2026

Tengd mál