Upplýsingar um auglýsingu
Deild
C deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Bandaríkin
Undirritunardagur
17. desember 2008
Útgáfudagur
31. desember 2008
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 8/2008
17. desember 2008
AUGLÝSING
um tvísköttunarsamning við Bandaríkin.
Samningur milli ríkisstjórnar Íslands og ríkisstjórnar Bandaríkja Norður-Ameríku til að komast hjá tvísköttun og koma í veg fyrir undanskot frá skattlagningu á tekjur, sem gerður var í Washington 23. október 2007, öðlaðist gildi 15. desember 2008. Samkvæmt 27. gr. samningsins skal samningi milli ríkjanna til að komast hjá tvísköttun og koma í veg fyrir undanskot frá skattlagningu á tekjur og eignir frá 7. maí 1975 aðeins beitt á takmarkaðan hátt og í takmarkaðan tíma en skal slitið 31. desember 2009, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 22/1975 þar sem síðarnefndi samningurinn er birtur.
Samningurinn er birtur sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 17. desember 2008.Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
Benedikt Jónsson.
Fylgiskjal.
(sjá
PDF-skjal)
C deild - Útgáfud.: 31. desember 2008