Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Atvinnuvegaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Matvæli
Undirritunardagur
29. maí 2026
Útgáfudagur
2. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 624/2026
29. maí 2026
REGLUGERÐ
um (22.) breytingu á reglugerð nr. 187/2015 um bragðefni og tiltekin innihaldsefni matvæla sem hafa bragðgefandi eiginleika til notkunar í og á matvæli.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliður, svohljóðandi:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/175 frá 26. janúar 2026 um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1334/2008 að því er varðar að færa hesperetíndíhýdrókalkón á skrá Sambandsins yfir bragðefni. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2026 frá 30. apríl 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36 frá 28. maí 2026, bls. 269.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/172 frá 26. janúar 2026 um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1334/2008 að því er varðar að færa 3-[3-(2-ísóprópýl-5-metýl-sýklóhexýl)-úreídó]-smjörsýruetýlestra á skrá Sambandsins yfir bragðefni og um leiðréttingu á tilteknum CAS-númerum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2026 frá 30. apríl 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36 frá 28. maí 2026, bls. 265.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 29. maí 2026.
F. h. r.
Kolbeinn Árnason.
Donika Kolica.
B deild — Útgáfudagur: 2. júní 2026