Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Öryggismál, Siglingar - skip

Undirritunardagur

12. apríl 2024

Útgáfudagur

2. maí 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 528/2024

12. apríl 2024

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 122/2004 um öryggi fiskiskipa sem eru 15 metrar eða lengri að mestu lengd.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á IX. kafla viðauka I við reglugerðina:

  1. Í 1. tölulið 2. reglu bætast við eftirfarandi orðskýringar:

    r) „GMDSS“, Global Maritime Distress and Safety System (alþjóða neyðar- og öryggiskerfi fyrir sjófarendur).
    s) „Skipajarðstöð“, færanleg jarðstöð til notkunar með samþykktri GMDSS-gervihnattaþjónustu.
    t) „Samþykkt GMDSS-gervihnattaþjónusta“, þjónusta veitt af fyrirtæki sem rekur gervihnattafjarskiptakerfi samþykkt af Samgöngustofu fyrir GMDSS, sem meðal annars nýtist til neyðarfjarskipta.
  2. 1. málsliður stafliðar e í 1. tölulið 6. reglu orðist svo: fjarskiptabúnaði til móttöku á öryggistilkynningum til sjófarenda, frá hópkallkerfi í samþykktri GMDSS-gervihnattaþjónustu, sé skipið í ferðum á einhverju hafsvæði, sem slík þjónusta nær til, en þar sem alþjóðleg NAVTEX-þjónusta er ekki veitt.
  3. i-liður stafliðar f í 1. tölulið 6. reglu orðist svo: vera fær um að senda neyðarmerki, annaðhvort um þjónustu gervihnatta á pólferlum, sem starfa á tíðnunum 406 MHz til staðsetningar og 121,5 MHz til nærmiðunar (COSPAS/SARSAT) eða, sé skipið aðeins í ferðum innan svæðis, sem viðurkennd GMDSS-þjónusta nær til, um slíka þjónustu á 1,6 GHz tíðnisviðinu.
  4. Stafliður c í 2. tölulið 6. reglu orðist svo: fjarskiptabúnaði til móttöku á öryggistilkynningum til sjófarenda frá hópkallkerfi í samþykktri GMDSS-gervihnattaþjónustu samkvæmt staflið e í 1. tölulið.
  5. Í stað orðsins „INMARSAT“ í neðanmálsgrein 277 kemur: GMDSS.
  6. Í stað orðanna „þjónustu kyrrstæðu INMARSAT gervihnattanna“ í staflið e í 1. tölulið 7. reglu kemur: samþykkta GMDSS-gervihnattaþjónustu.
  7. Orðið „INMARSAT“ fellur brott í i- og ii-lið stafliðar e í 1. tölulið 7. reglu.
  8. Neðanmálsgrein 281 fellur brott.
  9. iii-liður stafliðar c í 1. tölulið 8. reglu orðist svo: í gegnum samþykkta GMDSS-gervihnattaþjónustu. Þessu ákvæði má fullnægja með skipajarðstöð eða frífljótandi neyðarbaujunni, sem krafist er samkvæmt 6. reglu, staflið f í 1. tölulið, annaðhvort með því að koma frífljótandi neyðarbaujunni fyrir nálægt eða að henni sé fjarstýrt frá þeim stað þaðan sem skipinu er að jafnaði stjórnað.
  10. Orðið „INMARSAT“ í staflið b í 3. tölulið 8. reglu fellur brott.
  11. Orðið „INMARSAT“ í staflið a í 1. tölulið 9. reglu fellur brott.
  12. iii-liður stafliðar d í 1. tölulið 9. reglu orðist svo: í gegnum samþykkta GMDSS-gervihnattaþjónustu, með viðbótar skipajarðstöð eða með frífljótandi neyðarbaujunni, sem krafist er samkvæmt 6. reglu, staflið f í 1. tölulið, annaðhvort með því að koma frífljótandi neyðarbaujunni fyrir nálægt eða að henni sé fjarstýrt frá þeim stað þaðan sem skipinu er að jafnaði stjórnað.
  13. ii-liður stafliðar c í 2. tölulið 9. reglu orðist svo: í gegnum samþykkta GMDSS-gervihnattaþjónustu. Þessu ákvæði má fullnægja með viðbótar skipajarðstöð eða með frífljótandi neyðarbaujunni, sem krafist er samkvæmt 6. reglu, staflið f í 1. tölulið, annaðhvort með því að koma frífljótandi neyðarbaujunni fyrir nálægt eða að henni sé fjarstýrt frá þeim stað þaðan sem skipinu er að jafnaði stjórnað; og
  14. Orðið „INMARSAT“ í d-lið 1. töluliðar 11. reglu fellur brott.
  15. Orðið „INMARSAT“ í 2. tölulið 12. reglu fellur brott.
  16. Orðið „INMARSAT“ í staflið c í 7. tölulið a í 14. reglu fellur brott.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 2. mgr. 24. gr. skipalaga nr. 66/2021, öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 12. apríl 2024.

Svandís Svavarsdóttir.

Hermann Sæmundsson.

B deild - Útgáfud.: 2. maí 2024

Tengd mál