Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Umferðarmál, Öryggismál, Eiturefni - spilliefni, Flutningar
Undirritunardagur
16. maí 2023
Útgáfudagur
1. júní 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 530/2023
16. maí 2023
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 1077/2010 um flutning á hættulegum farmi á landi.
1. gr.
Við 2. mgr. 50. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, k-liður, svohljóðandi:
- Framseld tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2407 frá 20. september 2022 um breytingu á viðaukunum við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/68/EB í því skyni að laga viðaukana að framförum á sviði vísinda og tækni, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 64/2023, 17. mars 2023, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 20. apríl 2023, bls. 428-429.
2. gr. Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 4. mgr. 81. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 16. maí 2023.
F. h. r.
Valgerður B. Eggertsdóttir.
Gauti Daðason.
B deild - Útgáfud.: 1. júní 2023