Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið (2012-2022)
Málaflokkur
Landbúnaður
Undirritunardagur
1. júní 2015
Útgáfudagur
15. júní 2015
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 523/2015
1. júní 2015
REGLUGERÐ
um (2.) breytingu á reglugerð nr. 190/2011 um markaðsfyrirkomulag við aðilaskipti að greiðslumarki mjólkur á lögbýlum.
1. gr.
4. gr. reglugerðarinnar með fyrirsögn orðast svo:
Aðilaskipti.
Þrátt fyrir ákvæði þessarar reglugerðar er Matvælastofnun heimilt í eftirfarandi tilvikum að staðfesta aðilaskipti að greiðslumarki mjólkur, án þess að viðskiptin hafi verið gerð á markaði skv. 5. gr.:
- Þegar aðilaskiptin að greiðslumarki fara fram milli aðila innan sama lögbýlis.
- Þegar um er að ræða sölu á greiðslumarki frá einu lögbýli til annars lögbýlis innan sömu jarðtorfu (tvíbýlis- eða margbýlisjarðar, sbr. ákvæði landskiptalaga nr. 46/1941), þótt skipt hafi verið með landskiptum að hluta til, enda sé salan til þess fallin að auðvelda kynslóðaskipti og er að öðru leyti hagfelld.
- Þegar greiðslumark er flutt milli tveggja lögbýla á jörð í eigu/ábúð handhafa greiðslumarks.
Beiðni um aðilaskipti samkvæmt a. og b. lið skal fylgja umsögn héraðsráðunautar.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 82. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast gildi við birtingu.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 1. júní 2015.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Ólafur Friðriksson.
Rebekka Hilmarsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 15. júní 2015