Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Fljótsdalshreppur
Málaflokkur
Skipulagsmál, Byggingarmál, Múlasýslur, Mannvirki
Undirritunardagur
6. september 2016
Útgáfudagur
28. september 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 820/2016
6. september 2016
SAMÞYKKT
um byggingarleyfisgjald, afgreiðslu- og þjónustugjöld byggingarfulltrúa, framkvæmdaleyfisgjald og gjöld vegna skipulagsbreytinga í Fljótsdalshreppi.
1. gr. Gjöld samkvæmt samþykkt þessari.
Lóðarhafar og framkvæmdaaðilar í Fljótsdalshreppi greiða sveitarsjóði eftirtalin gjöld samkvæmt samþykkt þessari:
- Byggingarleyfisgjald.
- Afgreiðslu- og þjónustugjöld vegna mannvirkjamála.
- Framkvæmdaleyfisgjöld.
- Gjöld vegna vinnu eða breytinga á skipulagsáætlunum.
2. gr. Byggingarleyfisgjald.
Innheimta skal byggingarleyfisgjald fyrir hverja þá framkvæmd sem byggingarleyfi er gefið út fyrir.
Byggingarleyfisgjald er grunngjald, að viðbættu gjaldi pr. m³ byggingar. Þó skal ekki innheimta byggingarleyfisgjald fyrir byggingar sem eru 10 m² eða minni, nema um viðbyggingar sé að ræða.
Innifalið í byggingarleyfisgjaldi er lögboðin meðferð byggingarleyfiserinda, lóðarblöð, yfirferð teikninga, útmæling fyrir húsi og hæðarkóta og reglubundið eftirlit, eftir því sem við á.
| Tegund byggingar/framkvæmdar |
Grunngjald, kr. |
Gjald
pr.
m³, kr. |
Athugasemdir | |
| A | Íbúðarhúsnæði og stakar byggingar á íbúðarlóðum, stærri en 15 m² | 15.000 | 150 | Nýbyggingar og breytingar á eldra húsnæði |
| B | Byggingar á athafna-, verslunar- og iðnaðarsvæðum | 30.000 | 200 | |
| C | Byggingar á svæðum fyrir frístundahús | 15.000 | 150 | |
| D | Byggingar á landbúnaðarsvæðum, aðrar en íbúðarhús og hús til gistireksturs | 15.000 | 100 | Rúmmetragjald pr. m³ upp að 1.000 m³ |
| E | Byggingarleyfi vegna sólpalla, loftneta, girðinga, minni háttar breytingar á húsnæði o.þ.h. | 15.000 | 0 | |
| F | Gjald vegna leyfisskylds niðurrifs mannvirkja | 15.000 | 0 | |
| G | Endurnýjun byggingarleyfis (óbreytt endurnýjun) | 15.000 | 0 |
3. gr. Afgreiðslu- og þjónustugjöld vegna mannvirkjamála.
Gjalddagi afgreiðslu- og þjónustugjalda vegna mannvirkjamála miðast við útgáfu viðkomandi vottorða og ákveðst samhliða því að önnur þjónusta er veitt.
| Tegund þjónustu | Gjald, kr. | Athugasemdir | |
| 1 | Útgáfa stöðuleyfis | 15.000 | Eftirlit og úttekt byggingarfulltrúa sem leiðir af veitingu stöðuleyfis fyrir hjólhýsi, gáma o.þ.h. |
| 2 | Framlenging stöðuleyfis | 7.500 | Stöðuleyfi er aðeins veitt til 1 árs í senn |
| 3 | Vottorð um byggingarstig | 15.000 | |
| 4 | Aukavottorð um byggingarstig og stöðuúttekt | 15.000 | |
| 5 | Lokavottorð og lokaúttekt | 30.000 |
Krónur
30.000
fyrir
hús
á
svæðum
fyrir
verslun
og
þjónustu,
opinberar
byggingar,
iðnað
og
athafnasvæði. 50% lægra gjald fyrir aðrar byggingar |
| 6 | Afgreiðsla eignaskiptayfirlýsingar | 15.000 | |
| 7 | Vottorð vegna vínveitingaleyfa | 15.000 | |
| 8 | Endurskoðun aðaluppdrátta | 15.000 | |
| 9 | Stofnun lóða | 20.000 | |
| 10 | Aukaúttekt byggingarfulltrúa | 15.000 | |
| 11 | Úttekt vegna útleigu húsnæðis | 15.000 | |
| 12 |
Skannaðar
eða
ljósritaðar
teikningar. Stærri blöð en A4 |
800 | Á einnig við um teikningar sem sendar eru rafrænt |
| 13 | Önnur þjónusta byggingarfulltrúa | 15.000 | Tímagjald byggingarfulltrúa og/eða aðkeypt vinna, skv. reikningi |
4. gr. Framkvæmdaleyfisgjöld.
Innheimta skal framkvæmdaleyfisgjald fyrir hverja þá framkvæmd sem framkvæmdaleyfi er gefið út fyrir. Gjaldið má ekki nema hærri upphæð en nemur kostnaði við undirbúning og útgáfu leyfisins og eftirlitið, svo sem vegna nauðsynlegrar aðkeyptrar þjónustu.
Framkvæmdaleyfisgjald samkvæmt eftirfarandi töflu eru innheimt við útgáfu framkvæmdaleyfis. Gjalddagi eftirlitsgjalds er í kjölfar eftirlits:
| Tegund þjónustu | Gjald, kr. | Athugasemdir | |
| 16 | Kostnaður vegna framkvæmdaleyfis: | ||
| 16.1 | Afgreiðslugjald | 3.000 | |
| 16.2 | Framkvæmdaleyfi – framkvæmdir skv. 1. og 2. viðauka laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, viðmiðunargjald | 120.000 | Gjald er reiknað í hverju tilviki út frá áætluðu umfangi framkvæmdar. Gjald skal standa undir kostnaði við útgáfu leyfis og eftirliti með framkvæmd |
| 16.3 | Framkvæmdaleyfi – aðrar framkvæmdir, viðmiðunargjald | 60.000 | Gjald er áætlað í hverju tilviki út frá áætluðu umfangi framkvæmdar. Gjald skal standa undir kostnaði við útgáfu leyfis og eftirliti með framkvæmd |
| 16.4 | Eftirlit umfram eina ferð, sem er innifalin í framkvæmdaleyfisgjaldi | 15.000 | Tímagjald byggingarfulltrúa og/eða aðkeypt vinna, skv. reikningi |
5. gr. Gjöld vegna breytinga á skipulagsáætlunum.
Sé þörf á að vinna skipulagsáætlun eða gera breytingu á henni vegna leyfisskyldra framkvæmda getur sveitarstjórn innheimt gjald fyrir skipulagsvinnu sem nauðsynleg er vegna þeirrar framkvæmdar, samkvæmt eftirfarandi töflu. Gjaldið skal ekki nema hærri upphæð en nemur kostnaði við skipulagsgerðina og kynningu og auglýsingu skipulagsáætlunar og eru einstakir gjaldaliðir því settir fram til viðmiðunar. Gjalddagi gjalda vegna skipulagsáætlana miðast við það þegar vinna fer fram og/eða kostnaður fellur til.
| Tegund þjónustu | Gjald, kr. | Athugasemdir | |
| 5.1 | Kostnaður vegna aðalskipulagsbreytinga: | ||
| 5.11 | Afgreiðslugjald | 6.000 | |
| 5.12 | Breyting á aðalskipulagsuppdrætti, sbr. gr. 4.8.2., viðmiðunargjald | 120.000 | Viðmiðunargjald |
| 5.13 | Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. gr. 4.8.2 | 80.000 | |
| 5.14 | Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. gr. 4.8.3 | 80.000 | |
| 5.2 | Kostnaður vegna deiliskipulags: | ||
| 5.21 | Afgreiðslugjald | 6.000 | |
| 5.22 | Nýtt deiliskipulag, sbr. gr. 5.3 | Aðkeypt vinna samkvæmt reikningi | |
| 5.23 | Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. gr. 5.6 | 80.000 | |
| 5.24 | Breytingar á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. gr. 5.8.1 og gr. 5.9.6 | Aðkeypt vinna samkvæmt reikningi | |
| 5.25 | Umsýslu- og auglýsingakostnaður vegna verulegra breytinga, sbr. gr. 5.8.1 | 80.000 | |
| 5.26 | Umsýslu- og auglýsingakostnaður vegna óverulegra breytinga, sbr. gr. 5.8.2 | 60.000 | |
| 5.27 | Grenndarkynning vegna breytingar á deiliskipulagsuppdrætti | 30.000 | |
| 5.3 | Kostnaður vegna grenndarkynningar: | ||
| 5.31 | Grenndarkynning | 30.000 |
6. gr. Ýmis ákvæði.
Öll gjöld samkvæmt samþykkt þessari eru miðuð við vísitölu byggingarkostnaðar í júlí 2016 (grunnur 2010, 128,0 stig). Endurreikna skal gjöldin í upphafi hvers almanaksárs, á grundvelli vísitölu byggingarkostnaðar í janúar og skal sá útreikningur gilda til loka viðkomandi árs.
Upphæð gjalda samkvæmt 4. gr. skal taka mið af kostnaði við þjónustu og einstök verkefni og skal byggð á áætlun þar sem rökstudd eru þau atriði sem ákvörðun gjalds byggist á. Gjaldið má ekki vera hærra en sá kostnaður.
Öll gjöld samkvæmt samþykkt þessari eru ásamt áföllnum vöxtum og kostnaði, tryggð með lögveðsrétti í viðkomandi fasteign og eru aðfararhæf samkvæmt 10. tl. 1. mgr. laga um aðför nr. 90/1989. Framkvæmdaleyfisgjöld og gjöld vegna skipulagsvinnu njóta þó ekki lögveðsréttar. Séu gjöld ekki greidd á eindaga skulu reiknast dráttarvextir frá gjalddaga, skv. ákvæðum laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.
7. gr. Samþykkt og gildistaka.
Byggingarleyfisgjald og afgreiðslu- og þjónustugjöld vegna mannvirkjamála byggja á 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.
Gjöld vegna framkvæmdaleyfa og vinnu við skipulagsáætlanir byggja á skipulagslögum nr. 123/2010, sbr. 20. gr. laganna, sbr. einnig 18. gr., sbr. 2. mgr. 38. gr. laganna.
Samþykkt þessi öðlast gildi við birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 188/2004.
Samþykkt í sveitarstjórn Fljótsdalshrepps, 6. september 2016.
Gunnþórunn Ingólfsdóttir oddviti.
B deild - Útgáfud.: 28. september 2016