Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál

Undirritunardagur

8. apríl 2021

Útgáfudagur

26. apríl 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 442/2021

8. apríl 2021

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 1125/2014 um frammistöðukerfi fyrir flugleiðsöguþjónustu og starfsemi neta.

1. gr.

Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi málsgrein:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1627 frá 3. nóvember 2020 um sérstakar ráðstafanir fyrir þriðja viðmiðunartímabil (2020-2024) frammistöðu- og gjaldtökukerfis fyrir samevrópska loftrýmið, vegna COVID-19, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 224/2020 frá 11. desember 2020, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 19 frá 18. mars 2021, bls. 41-45.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. mgr. 57. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 8. apríl 2021.

F. h. r.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Valgerður B. Eggertsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 26. apríl 2021

Tengd mál