Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.
Málaflokkur
Skipulagsmál, Árnessýsla
Undirritunardagur
26. maí 2026
Útgáfudagur
9. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 649/2026
26. maí 2026
AUGLÝSING
um deiliskipulag í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
Deiliskipulagsbreyting, Stangarlækur 3, L236421, aukið byggingarmagn og bílskúr.
Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Stangarlæks 3, L236421. Skilmálar vegna byggingarheimilda á byggingarreit fyrir íbúðarhús Stangarlæks 3 breytast.
Samþykkt í sveitarstjórn 15. maí 2026.
Deiliskipulagsbreyting, Tóftabraut 6, L196616, og Tóftabraut 3, L196614.
Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Tóftabrautar 6, L196616, og Tóftabrautar 3, L196614, en breytingin snýr að lóðarmörkum þeirra. Vegna breytingarinnar stækkar Tóftabraut 6 úr 7.606 m² í 8.102,5 m². Tóftabraut 3 minnkar úr 7.911 m² í 7.414,5 m². Kvöð er á Tóftabraut 3 vegna aðkomu að Tóftabraut 6. Einnig er skilmálum deiliskipulagsins breytt. Fellt verður út „Á hverri lóð er heimilt að reisa frístundahús og með hámarksnýtingarhlutfall upp á 0,03. Hámarksstærð aukahúss má vera 40 fm.“ Í staðinn kemur: Heimilt er að byggja frístundahús og aukahús ásamt geymslu. Hámarksnýtingarhlutfall er 0,03.
Samþykkt í sveitarstjórn 15. maí 2026.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 26. maí 2026.
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,
Sigríður Kristjánsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 9. júní 2026