Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál
Undirritunardagur
25. nóvember 2020
Útgáfudagur
30. nóvember 2020
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1194/2020
25. nóvember 2020
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 277/2008 um aðgerðir til að tryggja flugöryggi og skrá yfir flugrekendur er ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur.
1. gr.
Við c-lið 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 34, sem orðast svo:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/2105 frá 9. desember 2019 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 um skrá yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins.
2. gr.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/2105 frá 9. desember 2019 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 um skrá yfir flugrekendur sem er bannað að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 139/2020 frá 25. september 2020. Framkvæmdarreglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69, frá 29. október 2020, bls. 615-623.
3. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 3. gr., 1. mgr. 4. gr. og 5. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 25. nóvember 2020.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Valgerður B. Eggertsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 30. nóvember 2020