Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Sveitarfélagið Ölfus
Málaflokkur
Skipulagsmál, Sveitarfélagið Ölfus
Undirritunardagur
3. mars 2026
Útgáfudagur
6. mars 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 228/2026
3. mars 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Sveitarfélaginu Ölfusi.
Laxabraut 5 – nýtt deiliskipulag.
Í samræmi við skipulagslög samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 11. desember 2025 nýtt deiliskipulag fyrir lóðina Laxabraut 5. Á lóðinni er rekin fiskeldisstöð en stefnt er að stækkun starfseminnar.
Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Grunnskóli Þorlákshafnar – nýtt deiliskipulag.
Í samræmi við skipulagslög samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 27. nóvember 2025 nýtt deiliskipulag fyrir Grunnskóla Þorlákshafnar og samliggjandi byggingar. Til stendur að stækka grunnskólann til að mæta auknum fjölda íbúa og tengja hann við íþróttahúsið með viðbyggingu.
Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Gljúfurárholt 23 og 24 – deiliskipulagsbreyting.
Í samræmi við skipulagslög samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 29. janúar 2025 breytingu á deiliskipulagi Gljúfurárholts 23 og 24. Breytingin felur í sér fjölgun byggingarreita og að Gljúfurárholti 23 verði skipt upp. Þá er fyrirhugað að reisa smáhýsi til bændagistingar.
Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Réttarhola – nýtt deiliskipulag.
Í samræmi við skipulagslög samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 27. nóvember 2025 nýtt deiliskipulag fyrir lóðina Réttarholu í landi Kröggólfsstaða. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir byggingu allt að 50 m² dæluhúss við borholu á raskaðri lóð, í samræmi við gildandi aðalskipulag sveitarfélagsins Ölfuss 2020-2036 þar sem svæðið er skilgreint sem landbúnaðarland (L1). Skipulagssvæðið nýtist til vatnstöku fyrir seiðaeldisstöð á nálægri lóð og fellur framkvæmdin undir heimila notkun samkvæmt aðalskipulagi.
Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Þorlákshöfn, 3. mars 2026.
Sigurður Steinar Ásgeirsson,
sviðsstjóri skipulags- og lögfræðisviðs.
B deild — Útgáfudagur: 6. mars 2026