Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Fjármálastarfsemi

Undirritunardagur

17. desember 2019

Útgáfudagur

18. desember 2019

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1170/2019

17. desember 2019

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 266/2017, um lausafjárhlutfall lánastofnana.

1. gr.

Á eftir „4. gr.“ í d-lið 2. mgr. 1. gr. reglnanna kemur: og 4. gr. a.

2. gr.

Á eftir 4. gr. reglnanna kemur ný grein, 4. gr. a, ásamt fyrirsögn, sem orðast svo:

Lausafjárhlutfall í íslenskum krónum.

  1. Auk lausafjárhlutfalls skv. 3. gr. skal lausafjárhlutfall lánastofnunar í íslenskum krónum á hverjum tíma vera a.m.k. 50% og reiknað samkvæmt jöfnu 1. mgr. 3. gr.
  2. Ákvæði 5. mgr. 3. gr. á við falli lausafjárhlutfall lánastofnunar í íslenskum krónum undir það lágmark sem sett er í 1. mgr. þessarar greinar.

3. gr.

Orðin „og 6.“ í 3. mgr. 4. gr. reglnanna falla brott.

4. gr.

Á eftir „4. gr.“ í 1. málsl. 1. mgr. 19. gr. reglnanna kemur: og 4. gr. a.

5. gr.

Fyrirsögn 30. gr. reglnanna orðast svo: Viðbótarútflæði.

6. gr.

10. mgr. 31. gr. reglnanna fellur brott.

7. gr.

Á eftir 31. gr. reglnanna kemur ný grein, 31. gr. a, ásamt fyrirsögn, sem orðast svo:

Útflæði vegna skuldbindinga sem falla ekki undir önnur ákvæði kaflans.

Lausafjárútflæði sem leiðir af skuldbindingum sem falla í gjalddaga innan 30 daga, öðrum en þeim sem vísað er til í 23.-31. gr., fær 100% vægi.

8. gr.

Á eftir „4. gr.“ í 1. mgr. 37. gr. reglnanna kemur: og 4. gr. a.

9. gr.

Við reglurnar bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo ásamt fyrirsögn:

Bráðabirgðaákvæði vegna lausafjárhlutfalls í íslenskum krónum.

  1. Þrátt fyrir 1. mgr. 4. gr. a skal lágmark lausafjárhlutfalls lánastofnunar vera með eftirfarandi hætti:

    1. Frá gildistöku reglna þessara til og með 31. desember 2020 skal lausafjárhlutfall lánastofnunar í íslenskum krónum að lágmarki vera 30%.
    2. Frá 1. janúar 2021 til og með 31. desember 2021 skal lausafjárhlutfall lánastofnunar í íslenskum krónum að lágmarki vera 40%.
  2. Bráðabirgðaákvæði þetta fellur úr gildi 1. janúar 2022 en frá og með þeim degi skal lágmark lausafjárhlutfalls lánastofnunar í íslenskum krónum vera í samræmi við 1. mgr. 4. gr. a reglna þessara.

10. gr. Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru samkvæmt heimild í 1. mgr. 12. gr. laga nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands, öðlast gildi 1. janúar 2020.

Reykjavík, 17. desember 2019.

Seðlabanki Íslands,

Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Haukur C. Benediktsson
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 18. desember 2019

Tengd mál