Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Rangárþing ytra

Málaflokkur

Skipulagsmál, Rangárvallasýsla

Undirritunardagur

18. júlí 2025

Útgáfudagur

1. ágúst 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 866/2025

18. júlí 2025

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Rangárþingi ytra.

Tindasel, óveruleg breyting á deiliskipulagi.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti 9. júní 2025 tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Tindasel sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda 16. júní 2025. Gert er ráð fyrir gistingu fyrir allt að 200 manns á hóteli og gestahúsum, ásamt veitingasölu og afþreyingarþjónustu. Við nánari hönnun svæðis eftir gildistöku skipulagsins kom í ljós vænlegri staðsetning til uppbyggingar og byggingarreitir aðlagaðir að því. Gerð er breyting á uppdrætti og greinargerð. Byggingarreitur B3 færist til og eru byggingarheimildir færðar milli byggingarreita, frá B1 á B3. Heildarbyggingarmagn svæðis og gestafjöldi helst óbreyttur. Einnig er afmörkun minja á uppdrætti breytts svæðis uppfærð í samræmi við nýja minjaskráningu, sem nú er í lokadrögum. RA281-055 (gömul leið) lendir innan byggingareits. Að öðru leyti en því sem hér er greint frá gilda skilmálar eldra skipulags. Tillagan hefur hlotið skipulagsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010.

Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.

Hellu, 18. júlí 2025.

F.h. Rangárþings ytra,

Birgir Haraldsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.

B deild — Útgáfudagur: 1. ágúst 2025

Tengd mál