Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skatturinn

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

8. janúar 2020

Útgáfudagur

22. janúar 2020

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 28/2020

8. janúar 2020

AUGLÝSING

frá ríkisskattstjóra um frest til að skila umsókn um lækkun á fyrirframgreiðslu þinggjalda á árinu 2020.

  1. Frestur til að skila umsóknum um lækkun á fyrirframgreiðslu ársins 2020, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 1227/2019, er til 31. maí 2020 vegna lögaðila. Umsóknir ásamt gögnum skulu því í síðasta lagi hafa verið sendar rafrænt á netfangið umsoknir@rsk.is fyrir lok umsóknarfrests.
  2. Forsendur fyrir lækkun fyrirframgreiðslunnar eru þær að skatt- eða gjaldstofnar vegna tekjuársins 2019 séu a.m.k. 25% lægri en þeir stofnar sem fyrirframgreiðslan ákvarðast af, þ.e. tekjuárið 2018, og að álögð gjöld 2020 muni af þeim sökum að lágmarki verða 100.000 kr. lægri en við álagningu 2019.
  3. Umsækjanda ber að sýna fram á forsendur fyrir lækkun á fyrirframgreiðslu með framlagningu skattframtals 2020 ásamt lögboðnum fylgiskjölum. Ársreikningar skulu fylgja skattframtölum rekstraraðila. Hafi umsækjandi skilað rafrænu framtali 2020 ásamt fylgigögnum er nægilegt að vísa til þess í umsókninni.
  4. Vakin er athygli á því að heimilt er að óska eftir endurupptöku á ákvörðun ríkisskattstjóra innan þriggja mánaða frá dagsetningu úrskurðar.
  5. Auglýsing þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 1227/2019 og tekur þegar gildi.

Reykjavík, 8. janúar 2020.

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.

B deild - Útgáfud.: 22. janúar 2020

Tengd mál