Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

C deild

Stofnun

Utanríkisráðuneytið

Málaflokkur

Fjölþjóðasamningar

Undirritunardagur

23. september 2021

Útgáfudagur

8. desember 2022

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 99/2021

23. september 2021

AUGLÝSING

um breytingu á samningi EFTA-ríkjanna um stofnun eftirlitsstofnunar og dómstóls sem felst í því að bæta 44. gr. a og bókun 9 við samninginn.

Hinn 25. júní 2020 var norska utanríkisráðuneytinu afhent samþykktarskjal Íslands vegna samnings, sem gerður var í Brussel 30. janúar 2020, um breytingu á samningi milli EFTA-ríkjanna um stofnun eftirlitsstofnunar og dómstóls frá 2. maí 1992, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 32/1993, þar sem samningurinn er upphaflega birtur. Breytingin felst í að bætt er við samninginn 44. gr. a og bókun 9.

Samningurinn öðlaðist gildi 25. júní 2020 og er birtur sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

Utanríkisráðuneytinu, 23. september 2021.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Martin Eyjólfsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

C deild - Útgáfud.: 8. desember 2022

Tengd mál