Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Matvælaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Matvæli
Undirritunardagur
9. febrúar 2022
Útgáfudagur
10. febrúar 2022
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 169/2022
9. febrúar 2022
REGLUGERÐ
um (27.) breytingu á reglugerð nr. 978/2011, um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 um aukefni í matvælum.
1. gr.
Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Ákvæði til bráðabirgða.
Í samræmi við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/63 frá 14. janúar 2022 um breytingu á viðauka II og III við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 hvað varðar matvælaaukefnið títan díoxíð (E 171) er notkun E 171 bönnuð. Frá og með 3. mars 2022 má ekki nota efnið við framleiðslu matvæla. Fram til 7. ágúst 2022 má setja á markað matvæli sem framleidd eru með efninu fyrir 3. mars 2022 og mega vera á markaði út geymsluþolstíma sinn.
2. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a. laga nr. 93/1995 um matvæli og öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 9. febrúar 2022.
Svandís
Svavarsdóttir
matvælaráðherra.
Emilía Madeleine Heenen.
B deild - Útgáfud.: 10. febrúar 2022