Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Ríkisskattstjóri

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

16. desember 2015

Útgáfudagur

29. desember 2015

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1203/2015

16. desember 2015

AUGLÝSING

frá ríkisskattstjóra um bústofn til eignar í skattframtali 2016.

Eignamat í árslok.

Samkvæmt 2. tl. 73. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal telja búpening til eignar með verði er ríkisskattstjóri ákveður til eins árs í senn. Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 213/2001, um skattalega meðferð á bústofnsbreytingu og kaupverði lífdýra í landbúnaði, skal færa bústofn allan í ársbyrjun á bústofnsskýrslu með því verði sem ríkisskattstjóri ákveður sbr. framangreint.

Ríkisskattstjóri hefur ákveðið eftirfarandi mat á búpeningi í árslok 2015, álagningarárið 2016, vegna bústofnsskýrslu fyrir það álagningarár:

kr.
Mjólkurkýr 113.000
Holdakýr og naut 133.000
Kvígur, 1 1/2 árs og eldri 105.000
Geldneyti 72.000
Kálfar, yngri en 1/2 árs 14.000
Ær og sauðir 7.800
Hrútar 12.100
Gemlingar 9.000
Geitur 5.000
Hross á 14. vetri og eldri 18.000
Hross á 5. – 13. vetri 36.000
Fulltamin reiðhross á 5. – 13. vetri 170.000
Önnur nýtanleg reiðhross 90.000
Verðlaunahross á 5. – 13. vetri 250.000
Kynbótahestar á 5. – 13. vetri 350.000
Verðlaunaðir kynbótahestar á 5. – 13. vetri 450.000
Tryppi á 2. – 4. vetri 12.300
Folöld 8.700
Hænsni, eldri en 6 mánaða 940
Varphænsni 6 mánaða og yngri 635
Kjúklingar 235
Endur 820
Gæsir 1.640
Kalkúnar 2.460
Gyltur 37.000
Geltir 55.000
Grísir 8.850
Kanínur 5.000
Minkar: Karldýr 7.500
Kvendýr 5.000
Önnur ótilgreind dýr nýtt í rekstri 0

Reykjavík, 16. desember 2015.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.

B deild - Útgáfud.: 29. desember 2015

Tengd mál

Stjórnartíðindi