Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Seðlabanki Íslands
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi
Undirritunardagur
21. september 2023
Útgáfudagur
5. október 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1055/2023
21. september 2023
REGLUR
um verðbréfauppgjör og verðbréfamiðstöðvar.
1. gr. Gildissvið.
Reglur þessar gilda um nánari framkvæmd laga nr. 7/2020 um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 909/2014 frá 23. júlí 2014 um bætt verðbréfauppgjör í Evrópusambandinu og um verðbréfamiðstöðvar og um breytingu á tilskipunum 98/26/EB og 2014/65/ESB og reglugerð (ESB) nr. 236/2012 (hér eftir CSDR), hvað varðar:
- Kennistærðir fyrir útreikning á fjársektum vegna uppgjörsbrests og starfsemi verðbréfamiðstöðva í gistiaðildarríkjum skv. 29. gr. laganna og 7. og 24. gr. CSDR.
- Varfærniskröfur fyrir verðbréfamiðstöðvar og tilnefndar lánastofnanir sem bjóða viðbótarbankaþjónustu skv. 47. gr., 54 gr. og 59. gr. CSDR.
- Efni tilkynninga um innra uppgjör skv. 9. gr. CSDR.
- Starfsleyfi, eftirlitskröfur og rekstrarlegar kröfur fyrir verðbréfamiðstöðvar skv. 12., 17., 18., 22., 25., 26., 29., 33., 37., 45., 46., 48., 49., 52., 53. og 55. gr. CSDR.
- Sniðmát og verklag fyrir tilkynningar og sendingu upplýsinga um innra uppgjör skv. 9. gr. CSDR.
- Stöðluð eyðublöð, sniðmát og verklagsreglur vegna starfsleyfisveitingar, úttektar og mats á verðbréfamiðstöðvum, vegna samstarfs milli yfirvalda í heimaaðildarríki og gistiaðildarríki, vegna samráðs yfirvalda sem taka þátt í að veita starfsleyfi fyrir viðbótarbankaþjónustu, vegna aðgangs í tengslum við verðbréfamiðstöðvar og að því er varðar snið skránna sem verðbréfamiðstöðvar skulu geyma skv. 17., 22., 24., 29., 33., 49., 52., 53. og 55. gr. CSDR.
- Aga í uppgjöri skv. 6. og 7. gr. CSDR.
2. gr. Tilvísanir og skilgreiningar.
Almennir fjárfestar: Með tilvísunum í reglum þessum til almennra fjárfesta eins og þeir eru skilgreindir í 11. tölulið 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB er átt við almenna fjárfesta skv. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Fagfjárfestar: Með tilvísunum í reglum þessum til fagfjárfesta eins og þeir eru skilgreindir í 10. tölulið 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB er átt við fagfjárfesta skv. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Fjárfestingarþjónusta og starfsemi: Með tilvísunum í reglum þessum til fjárfestingarþjónustu og starfsemi sem fellur undir tilskipun 2014/65/ESB er átt við fjárfestingarþjónustu og fjárfestingarstarfsemi skv. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Framkvæmd fyrirmæla: Með tilvísunum í reglum þessum til framkvæmdar fyrirmæla fyrir hönd viðskiptavina eins og hún er skilgreind í 5. lið 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB er átt við framkvæmd fyrirmæla skv. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Framkvæmd uppgjörskaupa á bestu fáanlegu kjörum: Með tilvísunum í reglum þessum til skyldu til að framkvæma uppgjörskaup á bestu fáanlegum kjörum í samræmi við 27. gr. tilskipunar 2014/65/ESB er átt við bestu framkvæmd skv. 48. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Framseljanleg verðbréf:
Með tilvísunum í reglum þessum til framseljanlegra verðbréfa eins og um getur í a-lið 44. töluliðar 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB er átt við verðbréf skv. a-lið 64. töluliðar 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Með tilvísunum í reglum þessum til framseljanlegra verðbréfa sem um getur í b-lið 44. töluliðar 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB er átt við verðbréf skv. b-lið 64. töluliðar 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Með tilvísunum í reglum þessum til framseljanlegra verðbréfa sem um getur í c-lið 44. töluliðar 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB er átt við verðbréf skv. c-lið 64. töluliðar 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Kauphallarsjóðir: Með tilvísunum í reglum þessum til kauphallarsjóða, eins og þeir eru skilgreindir í 46. tölulið 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB er átt við kauphallarsjóði skv. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Peningamarkaðsgerningar: Með tilvísunum í reglum þessum til peningamarkaðsgerninga, annarra en ríkisskuldabréfa sem um getur í 61. tölulið 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB, er átt við peningamarkaðsgerninga skv. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Ríkisskuldabréf: Með tilvísunum í reglum þessum til ríkisskulda eða ríkisskuldabréfa sem um getur í 61. tölulið 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB er átt við ríkisskuld skv. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Ríkisútgefandi: Með tilvísunum í reglum þessum til ríkisútgefanda, eins og hann er skilgreindur í 60. tölulið 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB er átt við ríkisútgefanda skv. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Uppgjörsfyrirmæli: Með tilvísunum í reglum þessum til uppgjörsfyrirmæla eins og þau eru skilgreind í i-lið 2. gr. tilskipunar 98/26/EB er átt við fyrirmæli skv. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 90/1999 um öryggi fyrirmæla í greiðslukerfum og verðbréfauppgjörskerfum.
3. gr. Innleiðing reglugerða.
Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi eftirfarandi reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB) sem birtar eru í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 24. september 2020, bls. 1-206, með þeim aðlögunum sem leiða af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 20/2019, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 48 frá 16. júlí 2020, bls. 36, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest:
Framseld
reglugerð
framkvæmdastjórnarinnar
(ESB)
2017/389
frá
11.
nóvember
2016
um
viðbætur
við
reglugerð
Evrópuþingsins
og
ráðsins
(ESB)
nr.
909/2014
að
því
er
varðar
kennistærðir
fyrir
útreikning
á
fjársektum
vegna
uppgjörsbrests
og
starfsemi
verðbréfamiðstöðva
í
gistiaðildarríkjum.
Framseld
reglugerð
framkvæmdastjórnarinnar
(ESB)
2017/390
frá
11.
nóvember
2016
um
viðbætur
við
reglugerð
Evrópuþingsins
og
ráðsins
(ESB)
nr.
909/2014
að
því
er
varðar
tæknilega
eftirlitsstaðla
um
tilteknar
varfærniskröfur
fyrir
verðbréfamiðstöðvar
og
tilnefndar
lánastofnanir
sem
bjóða
viðbótarbankaþjónustu.
Framseld
reglugerð
framkvæmdastjórnarinnar
(ESB)
2017/391
frá
11.
nóvember
2016
um
viðbætur
við
reglugerð
Evrópuþingsins
og
ráðsins
(ESB)
nr.
909/2014
um
tæknilega
eftirlitsstaðla
sem
tilgreina
frekar
efni
tilkynninga
um
innra
uppgjör.
Framseld
reglugerð
framkvæmdastjórnarinnar
(ESB)
2017/392
frá
11.
nóvember
2016
um
viðbætur
við
reglugerð
Evrópuþingsins
og
ráðsins
(ESB)
nr.
909/2014
að
því
er
varðar
tæknilega
eftirlitsstaðla
um
starfsleyfi,
eftirlitskröfur
og
rekstrarlegar
kröfur
fyrir
verðbréfamiðstöðvar.
Framkvæmdarreglugerð
framkvæmdastjórnarinnar
(ESB)
2017/393
frá
11.
nóvember
2016
um
tæknilega
framkvæmdarstaðla
að
því
er
varðar
sniðmát
og
verklag
fyrir
tilkynningar
og
sendingu
upplýsinga
um
innra
uppgjör
í
samræmi
við
reglugerð
Evrópuþingsins
og
ráðsins
(ESB)
nr.
909/2014.
Framkvæmdarreglugerð
framkvæmdastjórnarinnar
(ESB)
2017/394
frá
11.
nóvember
2016
um
tæknilega
framkvæmdarstaðla
að
því
er
varðar
stöðluð
eyðublöð,
sniðmát
og
verklagsreglur
vegna
starfsleyfisveitingar,
úttektar
og
mats
á
verðbréfamiðstöðvum,
vegna
samstarfs
milli
yfirvalda
í
heimaaðildarríki
og
gistiaðildarríki,
vegna
samráðs
yfirvalda
sem
taka
þátt
í
að
veita
starfsleyfi
fyrir
viðbótarbankaþjónustu,
vegna
aðgangs
í
tengslum
við
verðbréfamiðstöðvar
og
að
því
er
varðar
snið
skránna
sem
verðbréfamiðstöðvar
skulu
geyma
í
samræmi
við
reglugerð
Evrópuþingsins
og
ráðsins
(ESB)
nr.
909/2014.
Með reglum þessum öðlast einnig gildi hér á landi eftirfarandi reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB) sem birtar eru í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 66 frá 14. október 2021, bls. 3-55 og 116-117, með þeim aðlögunum sem leiða af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 309/2019, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 14 frá 5. mars 2020, bls. 68 og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 219/2021, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest:
Framseld
reglugerð
framkvæmdastjórnarinnar
(ESB)
2018/1229
frá
25.
maí
2018
um
viðbætur
við
reglugerð
Evrópuþingsins
og
ráðsins
(ESB)
nr.
909/2014
að
því
er
varðar
tæknilega
eftirlitsstaðla
um
aga
í
uppgjöri.
Framseld
reglugerð
framkvæmdastjórnarinnar
(ESB)
2021/70
frá
23.
október
2020
um
breytingu
á
framseldri
reglugerð
(ESB)
2018/1229
um
tæknilega
eftirlitsstaðla
um
aga
í
uppgjöri,
að
því
er
varðar
gildistöku
hennar.
Með reglum þessum öðlast einnig gildi hér á landi framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1930 frá 6. júlí 2022 um breytingu á tæknilegum eftirlitsstöðlum sem mælt er fyrir um í framseldri reglugerð (ESB) 2018/1229 að því er varðar daginn þegar ákvæði tengd reglum um uppgjörskaup koma til framkvæmda, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 45 frá 15. júní 2023, bls. 71-73, með þeim aðlögunum sem leiða af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 61 frá 17. mars 2023, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest.
4. gr. Gildistaka.
Reglur þessar, sem settar eru samkvæmt 1.-10. og 12.-24. tölulið 32. gr. laga nr. 7/2020 um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga, öðlast þegar gildi. Við gildistöku reglnanna falla úr gildi reglur nr. 80/2023 um verðbréfauppgjör og verðbréfamiðstöðvar.
Seðlabanka Íslands, 21. september 2023.
|
Ásgeir
Jónsson seðlabankastjóri. |
Rannveig
Júníusdóttir, framkvstjóri skrifstofu bankastjóra. |
B deild - Útgáfud.: 5. október 2023