Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Utanríkismál, Sendiráð
Undirritunardagur
8. september 2025
Útgáfudagur
11. september 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 60/2025
8. september 2025
FORSETAÚRSKURÐUR
um sendiráð, fastanefndir hjá alþjóðastofnunum og aðalræðisskrifstofur.
Forseti Íslands
gjörir kunnugt:
Samkvæmt tillögu utanríkisráðherra og með vísan til 4. gr. laga nr. 39/1971, um utanríkisþjónustu Íslands, eru hér með sett eftirfarandi ákvæði:
| 1. | a. | Sendiráð skulu vera í Berlín, Brussel, Freetown, Genf, Helsinki, Kampala, Kaupmannahöfn, Lilongwe, London, Madríd, Moskvu, Nýju-Delí, Ottawa, Ósló, París, Peking, Róm, Stokkhólmi, Tókýó, Varsjá, Vín og Washington. Sendiráðin í Genf, London, París, Róm og Vín skulu jafnframt gegna hlutverki fastanefnda gagnvart nánar tilteknum alþjóðastofnunum sem Ísland á aðild að. |
| b. | Fastanefndir skulu vera í Brussel, New York og Strassborg. Fastanefndin í New York skal jafnframt gegna hlutverki sendiráðs gagnvart nánar tilteknum ríkjum. | |
| c. | Aðalræðisskrifstofur skulu vera í Nuuk, Winnipeg og Þórshöfn. | |
| 2. | Umdæmi sendiráða skulu vera sem hér segir: | |
| a. | Berlín. Auk Þýskalands skal umdæmi sendiráðsins vera Tékkland. | |
| b. | Brussel. Auk Belgíu skal umdæmi sendiráðsins vera Holland og Lúxemborg. Sendiráðið skal gegna hlutverki sendiskrifstofu gagnvart Evrópusambandinu (EU). | |
| c. | Freetown. Umdæmi sendiráðsins skal vera Síerra Leóne. | |
| d. | Genf. Auk Sviss skal umdæmi sendiráðsins vera Liechtenstein og Páfagarður. Sendiráðið skal gegna hlutverki fastanefndar gagnvart Fríverslunarsamtökum Evrópu (EFTA), skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Genf (UNOG), Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO), Alþjóðafjarskiptasambandinu (ITU), Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO), Alþjóðahugverkastofnuninni (WIPO), Alþjóðaveðurfræðistofnuninni (WMO) og Alþjóðavinnumálastofnuninni (ILO). | |
| e. | Helsinki. Auk Finnlands skal umdæmi sendiráðsins vera Eistland, Lettland og Litáen. | |
| f. | Kampala. Umdæmi sendiráðsins skal vera Úganda. | |
| g. | Kaupmannahöfn. Auk Danmerkur skal umdæmi sendiráðsins vera Grikkland. | |
| h. | Lilongwe. Umdæmi sendiráðsins skal vera Malaví. | |
| i. | London. Auk Bretlands skal umdæmi sendiráðsins vera Írland og Malta. Sendiráðið skal gegna hlutverki fastanefndar gagnvart Alþjóðasiglingamálastofnuninni (IMO). | |
| j. | Madríd. Auk Spánar skal umdæmi sendiráðsins vera Andorra, Argentína, Chile, Kólumbía, Perú og Venesúela. | |
| k. | Moskva. Umdæmi sendiráðsins skal vera Rússland. | |
| l. | Nýja-Delí. Auk Indlands skal umdæmi sendiráðsins vera Ástralía, Nepal, Nýja-Sjáland og Srí Lanka. | |
| m. | Ottawa. Umdæmi sendiráðsins skal vera Kanada. | |
| n. | Ósló. Auk Noregs skal umdæmi sendiráðsins vera Egyptaland, Pakistan og Tyrkland. | |
| o. | París. Auk Frakklands skal umdæmi sendiráðsins vera Alsír, Líbanon, Marokkó, Mónakó, Portúgal og Túnis. Sendiráðið skal gegna hlutverki fastanefndar gagnvart Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD) í París og Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) í París. | |
| p. | Peking. Auk Kína skal umdæmi sendiráðsins vera Mongólía og Víetnam. | |
| q. | Róm. Umdæmi sendiráðsins skal vera Ítalía og San Marínó. Sendiráðið skal gegna hlutverki fastanefndar gagnvart Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO), Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) og Alþjóðasjóði um þróun landbúnaðar (IFAD). | |
| r. | Stokkhólmur. Auk Svíþjóðar skal umdæmi sendiráðsins vera Kýpur. | |
| s. | Tókýó. Auk Japans skal umdæmi sendiráðsins vera Filippseyjar, Indónesía, Singapúr, Suður-Kórea og Taíland. Sendiráðið skal gegna hlutverki sendiskrifstofu gagnvart Sambandi Suðaustur-Asíuríkja (ASEAN) í Jakarta. | |
| t. | Varsjá. Auk Póllands skal umdæmi sendiráðsins vera Búlgaría, Georgía, Moldóva, Rúmenía og Úkraína. | |
| u. | Vín. Auk Austurríkis skal umdæmi sendiráðsins vera Króatía, Slóvenía, Slóvakía og Ungverjaland. Sendiráðið skal gegna hlutverki fastanefndar gagnvart Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (OSCE), skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Vín (UNOV), Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni (IAEA) og skrifstofu samningsins um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn (CTBTO). | |
| v. | Washington. Auk Bandaríkjanna skal umdæmi sendiráðsins vera Brasilía og Mexíkó. | |
| 3. | Fyrirsvar fastanefnda skal vera sem hér segir: | |
| a. | Brussel. Fastanefndin skal fara með fyrirsvar gagnvart Atlantshafsbandalaginu (NATO) og stofnunum tengdum því. | |
| b. | New York. Fastanefndin skal fara með fyrirsvar gagnvart Sameinuðu þjóðunum (UN) í New York. Jafnframt skal fastanefndin gegna hlutverki sendiráðs og skal umdæmi þess vera Dóminíska lýðveldið og Kúba. | |
| c. | Strassborg. Fastanefndin skal fara með fyrirsvar gagnvart Evrópuráðinu (CoE). | |
| 4. | Umdæmi aðalræðisskrifstofa skal vera sem hér segir: | |
| a. | Nuuk. Umdæmi aðalræðisskrifstofunnar skal vera Grænland. | |
| b. | Winnipeg. Umdæmi aðalræðisskrifstofunnar skal vera fylkið Manitoba, fylkið Saskatchewan, að undanskilinni borginni Regina, og fylkið Alberta, að undanskildum borgunum Calgary og Edmonton. | |
| c. | Þórshöfn. Umdæmi aðalræðisskrifstofunnar skal vera Færeyjar. | |
| 5. | Utanríkisráðuneytið fer með fyrirsvar gagnvart öðrum alþjóðastofnunum og ríkjum sem Ísland hefur stjórnmálasamband við, m.a. með skipun sendiherra eða fastafulltrúa með búsetu í Reykjavík eftir því sem ástæða er til. | |
Úrskurður þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi forsetaúrskurður nr. 93 frá 18. ágúst 2022.
Gjört á Bessastöðum, 8. september 2025.
Halla Tómasdóttir.
(L. S.)
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
A deild — Útgáfudagur: 11. september 2025