Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál
Undirritunardagur
29. nóvember 2022
Útgáfudagur
30. nóvember 2022
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1296/2022
29. nóvember 2022
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 277/2008 um aðgerðir til að tryggja flugöryggi og skrá yfir flugrekendur er ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur.
1. gr.
Við c-lið 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýir töluliðir, 38 og 39, sem orðast svo:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2070 frá 25. nóvember 2021 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 að því er varðar skrá yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/594 frá 8. apríl 2022 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 að því er varðar skrá yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins.
2. gr.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirtaldar gerðir:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2070 frá 25. nóvember 2021 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 að því er varðar skrá yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 195 frá 10. júní 2022. Framkvæmdarreglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 47, frá 14. júlí 2022, bls. 130-150.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/594 frá 8. apríl 2022 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 að því er varðar skrá yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 263/2022 frá 23. september 2022. Framkvæmdarreglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72, frá 3. nóvember 2022, bls. 342-345.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 3. mgr. 228. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 29. nóvember 2022.
F. h. r.
Ólafur Kr. Hjörleifsson.
Valgerður B. Eggertsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 30. nóvember 2022