Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Hafnarfjarðarkaupstaður
Málaflokkur
Skipulagsmál, Hafnarfjörður
Undirritunardagur
28. maí 2026
Útgáfudagur
12. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 672/2026
28. maí 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Hafnarfjarðarkaupstað.
Óveruleg breyting á deiliskipulagi Kapelluhrauns, 2. áfanga, vegna lóðarinnar Stálhellu 18.
Í samræmi við skipulagslög samþykkti afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa 27. maí 2026 í samræmi við heimildir til embættismannaafgreiðslu, að málsmeðferð breytingarinnar fari skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fallið var frá grenndarkynningu þar sem sýnt var að breytingin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda.
Breytingin felst í að nýtingarhlutfall lóðarinnar Stálhellu 18 er 0,5 fyrir hús á einni hæð og allt að 0,6 fyrir hús á tveimur hæðum. Að öðru leyti gilda eldri skilmálar.
Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.
Hafnarfirði, 28. maí 2026.
F.h. skipulagsfulltrúa,
Berglind Guðmundsdóttir landslagsarkitekt.
B deild — Útgáfudagur: 12. júní 2026