Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Málaflokkur

Gæludýr, Norðurþing

Undirritunardagur

19. febrúar 2026

Útgáfudagur

4. mars 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 210/2026

19. febrúar 2026

SAMÞYKKT

um hunda- og kattahald og annað gæludýrahald í Norðurþingi.

I. KAFLIAlmennt.

1. gr. Gildissvið.

Samþykkt þessi gildir um hunda- og kattahald og annað gæludýrahald í Norðurþingi, sem er á starfssvæði heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra, og sætir þeim takmörkunum sem getið er um í samþykkt þessari. Þéttbýlin sem um ræðir í samþykkt þessari eru Húsavík, Kópasker, Raufarhöfn og Hrísateigur.

2. gr. Stjórnsýsla.

Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra fer með málefni hunda- og kattahalds og annars gæludýrahalds samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, og hefur eftirlit með framkvæmd samþykktar þessarar. Norðurþing fer með framkvæmd samþykktar þessarar í umboði heilbrigðisnefndar. Norðurþing getur ráðið dýraeftirlitsmenn eða falið starfsmönnum sínum hlutverk dýraeftirlitsmanna.

Dýraeftirlitsmenn geta leitað aðstoðar heilbrigðisnefndar, Matvælastofnunar og lögregluyfirvalda, ef þörf krefur, t.d. ef gæludýr er að mati eftirlitsmanns hættulegt umhverfi sínu eða vörsluaðili dýrs tálmar starfi eftirlitsmanns samkvæmt samþykkt þessari eða þegar nauðsynlegt er vegna almannahagsmuna, dýravelferðar eða heilbrigðis- og öryggissjónarmiða að leita atbeina lögreglu við að fjarlægja dýr.

3. gr. Dýravelferð og dýravernd.

Um almennan aðbúnað og velferð gæludýra sem og um ræktun, verslun, geymslu og leigu hunda, katta eða annarra gæludýra í atvinnuskyni, gilda ákvæði laga um velferð dýra, nr. 55/2013, og reglugerðar um velferð gæludýra, nr. 80/2016.

Samkvæmt lögum um velferð dýra, nr. 55/2013, fer Matvælastofnun með eftirlit og framkvæmd þeirra laga og reglugerða um velferð dýra.

II. KAFLISkyldur aðila.

4. gr. Skyldur sveitarfélagsins og eftirlitsaðila.

Norðurþing skal tryggja að til staðar sé dýrageymsla sem hefur tilskilin leyfi skv. 24. gr. laga  um velferð dýra, nr. 55/2013, og reglugerð um velferð gæludýra, nr. 80/2016, til vörslu dýra sem þarf að fanga vegna brota á samþykkt þessari.

Norðurþing heldur og uppfærir skrá yfir hunda og ketti í sveitarfélaginu. Í skránni skulu koma fram allar upplýsingar er varða hunda og ketti sem hafa fengið leyfi og öll afskipti sem eftirlitsaðilar hafa haft af dýrunum og umráðamönnum vegna þeirra. Jafnframt skulu koma fram upplýsingar um ormahreinsun hunda og katta eftir því sem við á.

Í kjölfar leyfisveitingar ber sveitarfélaginu að afhenda forráðamanni hunda og katta staðfestingu á að dýrið hafi leyfi og hafi verið skráð til heimilis í sveitarfélaginu.

Norðurþing kaupir ábyrgðartryggingu fyrir alla skráða leyfisskylda hunda og ketti og er iðgjaldið innifalið í árlegu leyfisgjaldi og skal sveitarfélagið upplýsa umráðamenn um efni samningsins, sbr. ákvæði IX. kafla laga um vátryggingarsamninga, nr. 30/2004.

Norðurþing getur ákveðið að dýrahald sé óheimilt í húsnæði sem sveitarfélagið á.

Heilbrigðisnefnd, Matvælastofnun, lögregla og eftir atvikum starfsmenn sveitarfélagsins skulu tilkynna dýraeftirlitsmönnum um kvartanir eða afskipti þeirra af hundum og köttum í sveitarfélaginu.

Norðurþing leggur til við heilbrigðisnefnd að eigendur dýra séu áminntir vegna brota á samþykkt þessari, sbr. 20. gr., og halda skrá um þær tillögur.

5. gr. Almennar skyldur gæludýraeigenda.

Eigendum hunda, katta og annarra gæludýra ber að sjá til þess að umhirða dýra þeirra sé í samræmi við ákvæði laga um velferð dýra, nr. 55/2013. Einnig ber þeim að fylgja ákvæðum annarra laga, reglugerða og samþykkta sem um gæludýrahald kunna að gilda.

Eigendur hunda og katta skulu færa dýr sína árlega til ormahreinsunar hjá dýralækni. Sveitarfélagið upplýsir um hvenær árleg ormahreinsun fer fram og er eigendum hunda og katta skylt að mæta á tilsettum tímum með dýr sín. Ef eigandi dýrs getur af einhverjum ástæðum ekki mætt á tilsettum tíma skal hann afhenda sveitarfélaginu staðfestingu frá dýralækni um að ormahreinsun hafi farið fram.

Eigendur hunda og katta skulu árlega greiða leyfisgjald fyrir hunda sína og ketti samkvæmt gjaldskrá sem sveitarfélagið setur í samræmi við ákvæði 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.

Eigendum og umráðamönnum hunda, katta og annarra gæludýra ber, eftir því sem framast er unnt, að sjá svo um að dýr þeirra valdi ekki hávaða, ónæði, óþrifnaði eða óhollustu.

Ef hundur, köttur eða annað gæludýr veldur nágrönnum eða öðrum ítrekuðu ónæði, óþrifum eða tjóni, þá ber eiganda eða umráðamanni dýrsins að leita leiða til að koma í veg fyrir slíkt.

Óheimilt er að hleypa hundum, köttum og öðrum gæludýrum inn í opinberar stofnanir, skólahús, vatnsveitur, vatnsból og verndarsvæði þeirra, brunna og sjóveitur eða inn á aðra þá staði sem tilgreindir eru í 43. gr. reglugerðar um hollustuhætti, nr. 903/2024, nema í þeim tilvikum sem eru tilgreind í greininni. Einnig er óheimilt að hleypa dýrum inn í húsnæði matvælafyrirtækja, sbr. reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 852/2004 um hollustuhætti sem varða matvæli, nr. 103/2010, og inn í húsnæði vatnsveitna, sbr. reglugerð um neysluvatn, nr. 536/2001. Víkja má frá fyrirmælum samþykktar þessarar sem banna eða takmarka umferð og dvöl hunda um tiltekna staði þegar um er að ræða þjónustuhunda sem nýttir eru til atvinnustarfsemi svo sem sérþjálfaða leiðsögu- og hjálparhunda, björgunarhunda og löggæsluhunda.

III. KAFLIHundahald.

6. gr. Leyfisskylda hunda.

Allir hundar í þéttbýli eru leyfisskyldir og skráðir á nafn og lögheimili lögráða umráðamanns í Norðurþingi og skal hundurinn haldinn á heimili hans. Útgefið leyfi er óframseljanlegt. Óheimilt er að hafa fleiri en þrjá hunda, eldri en fjögurra mánaða, á sama heimili. Umráðamaður hunds má ekki hafa verið sviptur leyfi til dýrahalds með dómi fyrir brot á lögum  um velferð dýra, nr. 55/2013.

Skylt er að sækja um leyfi fyrir hundi til sveitarfélagsins innan tveggja vikna frá því að hundur er tekinn inn á heimili. Sækja skal um leyfi fyrir hvolpum eigi síðar en þegar þeir ná þriggja mánaða aldri.

Hundar sem sótt er um leyfi fyrir skulu örmerktir af dýralækni samkvæmt reglugerð um velferð gæludýra, nr. 80/2016, og skal númer merkis skráð þegar sótt er um leyfi fyrir hundinum.

Dveljist hundur tímabundið í Norðurþingi skal skrá hann hjá sveitarfélaginu. Slík skráning skal þó ekki gilda lengur en þrjá mánuði. Skráning skal fara fram sem fyrst og ekki seinna en innan tveggja vikna frá því að hundur kom inn í sveitarfélagið. Um gestkomandi hunda sem skráðir eru tímabundið sem og óskráða hunda gilda öll ákvæði þessarar samþykktar.

Við leyfisveitingu og skráningu hunds getur sveitarfélagið leitað umsagnar lögreglu og annarra heilbrigðiseftirlitssvæða telji það ástæðu til.

7. gr. Gögn sem þarf að framvísa við leyfisumsókn fyrir hunda.

Umsókn um leyfi til hundahalds skal berast í gegnum heimasíðu Norðurþings og skulu eftirfarandi gögn lögð fram við umsókn um leyfi:

  1. Upplýsingar um heiti, fæðingardag, kyn, tegund og önnur einkenni hunds.
  2. Mynd af hundinum.
  3. Vottorð frá dýralækni um örmerki (einstaklingsmerkingu) hunds, sbr. 1. mgr. 22. gr. laga  um velferð dýra, nr. 55/2013, og 11. gr. reglugerðar um velferð gæludýra, nr. 80/2016.

Skilyrði fyrir því að veitt sé leyfi fyrir að halda hund er að gögn skv. 1. mgr. hafi verið lögð fram af hálfu umsækjanda og leyfisgjald greitt samkvæmt gjaldskrá sveitarfélagsins.

Óheimilt er að halda hund í húsnæði þar sem enginn er búsettur.

Sveitarfélaginu er heimilt að hafna beiðni um leyfi til að halda hund ef umsækjandi hefur áður ítrekað gerst brotlegur við samþykkt um hundahald í sveitarfélaginu eða annars staðar. Sama á við um skráningu hunds sem dvelur tímabundið í sveitarfélaginu.

8. gr. Bannaðar hundategundir.

Bannað er að halda hunda af þeim tegundum sem óheimilt er að flytja til landsins samkvæmt ákvörðun ráðherra svo og blendinga af þeim, sbr. 14. gr. reglugerðar um innflutning hunda og katta, nr. 200/2020 .

9. gr. Skyldur eigenda og umráðamanna hunda.

Óheimilt er að skilja hund eftir einan og eftirlitslausan að jafnaði lengur en átta klukkustundir í senn. Aðeins er heimilt að tjóðra hunda utandyra í undantekningartilvikum og þá einungis undir eftirliti í stuttan tíma í senn, sbr. reglugerð um velferð gæludýra, nr. 80/2016. Þegar hundur tjóðraður á lóð skal lengd festarinnar/taumsins við það miðuð að þeir sem eiga réttmætt erindi inn á lóðina geti óhindrað farið um.

Hundar skulu ávallt bera ól með plötu um hálsinn með ágreyptu skráningarnúmeri og símanúmeri umráðamanns.

Hundur skal aldrei ganga laus nema á þeim svæðum sem eru þar til ætluð, heldur vera í taumi í fylgd með aðila sem hefur fullt vald yfir honum eða vera í tryggu gerði innan lóðar. Sleppi hundur skal umráðamaður hans þegar gera ráðstafanir til að handsama hundinn.

Utan þéttbýlis er heimilt að sleppa hundi lausum undir eftirliti umráðamanns án þess þó að gengið sé á rétt viðkomandi landeiganda. Sé hundur laus ber umráðamanni að tryggja að hann valdi ekki öðrum ónæði, skapi hættu eða óöryggi. Lausir hundar mega ekki vera á skíðasvæðum eða öðrum íþróttaleikvöngum nema með sérstöku samþykki sveitarstjórnar.

Umráðamanni hunds er ávallt skylt að fjarlægja saur eftir hundinn.

Umráðamanni hunds er skylt að sjá til þess að hundur hans valdi ekki hættu, óþægindum, óþrifnaði, óöryggi eða verði mönnum til óþæginda á annan hátt, t.d. með stöðugu eða ítrekuðu gelti eða ýlfri. Hafi umráðamaður hunds vitneskju um eða ástæðu til að ætla að hundurinn sé grimmur eða varasamur skal hann ávallt hafa hundinn mýldan utan heimilis.

Bannað er að fara með hunda á almennar útisamkomur, brennur eða flugeldasýningar.

Umráðamaður hunds skal tilkynna sveitarfélaginu innan mánaðar um aðsetursskipti eða dauða hunds.

10. gr. Hundahald í dreifbýli.

Ekki þarf að sækja um leyfi fyrir hundahaldi á lögbýlum, en skylt er að skrá hunda á lögbýlum á skrifstofum Norðurþings.

Hundar í dreifbýli mega ganga lausir á landareign eigenda sinna. Að öðru leyti gilda ákvæði samþykktar þessarar eftir því sem við á.

Hundaeiganda eða umráðamanni hunds er skylt að láta ormahreinsa hund sinn árlega og ber hann allan kostnað af hreinsun hundsins. Skylt er að hreinsa alla hunda 4 mánaða og eldri.

Hundar þar sem búfjárhald er stundað og slátrun fer fram skulu ormahreinsaðir að liðinni aðalsláturtíð eða í síðasta lagi í desember ár hvert.

Nýgotnar tíkur og 3-4 vikna hvolpar skulu spóluormahreinsaðir sérstaklega samkvæmt leiðbeiningum dýralæknis.

11. gr. Lausaganga hunda.

Hunda sem ganga lausir á almannafæri er heimilt að handsama og færa í dýrageymslu á vegum sveitarfélagsins. Lesið skal af einstaklingsmerkjum og þegar gerðar ráðstafanir til að hafa uppi á eigendum hundanna.

Sé hundur ekki skráður í sveitarfélaginu er óheimilt að afhenda hann fyrr en hann hefur verið skráður í samræmi við 6. gr. Að aflokinni skráningu og gegn framvísun á staðfestingu greiðslu skráningar- og handsömunargjalds auk annars áfallins kostnaðar vegna brotsins, sbr. gjaldskrá sveitarfélagsins, getur eigandi hundsins fengið hann afhentan.

Sé skráður hundur handsamaður skal strax tilkynna eiganda það og upplýsa hann um hvað vanræksla á að vitja hundsins getur haft í för með sér. Ef umráðamaður vitjar ekki dýrsins innan viku frá því að tilkynnt var um handsömun þess eða ef umráðamaður finnst ekki innan tveggja vikna er sveitarfélaginu heimilt að ráðstafa dýrinu eins og um hálfvillt dýr sé að ræða, sbr. ákvæði 24. gr. laga nr. 55/2013, um velferð dýra. Áfallinn kostnaður greiðist af skráðum eiganda.

Hundur sem ekki er einstaklingsmerktur í samræmi við 22. gr. laga nr. 55/2013, um velferð dýra, telst vera hálfvillt dýr. Komi til handsömunar á slíkum hundi er sveitarfélaginu heimilt að ráðstafa honum til nýs eiganda, selja hann gegn áföllnum kostnaði eða aflífa án bóta, þegar liðnir eru sjö sólarhringar frá handsömun.

Sé hundur handsamaður sem ekki er skráður í sveitarfélaginu er óheimilt að afhenda hann fyrr en búið er að greiða handsömunargjald auk annars áfallins kostnaðar, sbr. gjaldskrá sveitarfélagsins. Skrá skal hundinn skv. 4. mgr. 6. gr. ef hann dvelur lengur en tvær vikur í sveitarfélaginu.

12. gr. Grimmir, varasamir og hættulegir hundar. Aflífun.

Hafi hundur bitið mann, skepnu eða gæludýr sem og ef hundur telst hættulegur, getur tjónþoli, forráðamaður hans eða sveitarfélagið krafist þess að hundurinn verði aflífaður eða honum fundin önnur úrræði.

Samþykki skráður eigandi hunds ekki aflífun né að honum séu fundin önnur úrræði skal heilbrigðisnefnd taka ákvörðun um hvort fallist verði á kröfuna. Óski hundaeigandi þess getur hann lagt fram álit sérfróðs aðila, dýralæknis eða hundaþjálfara sem heilbrigðisnefnd viðurkennir, áður en ákvörðun um afdrif hunds er tekin.

Meðan mál hunds er í skoðun er eiganda skylt að hafa hundinn í samþykktri dýrageymslu. Eigandi getur þó sótt um til heilbrigðisnefndar að fá að hafa hundinn á heimili sínu meðan málið er í skoðun gegn skuldbindingu um að hafa hundinn ávallt mýldan þegar hann er utandyra.

Allur kostnaður vegna skapgerðarmats og vistunar hunds skal greiddur af skráðum eiganda.

IV. KAFLIKattahald.

13. gr. Leyfisskylda katta.

Allir kettir í þéttbýli eru leyfisskyldir.

Kattahald í dreifbýli sætir að öllu jöfnu ekki takmörkunum.

Skylt er að sækja um leyfi fyrir ketti í þéttbýli sveitarfélagsins innan tveggja vikna frá því að köttur er tekinn inn á heimili. Sækja skal um leyfi fyrir kettlingum eigi síðar en þegar þeir ná þriggja mánaða aldri.

Kettir sem sótt er um leyfi fyrir skulu örmerktir af dýralækni samkvæmt reglugerð um velferð gæludýra, nr. 80/2016, og skal númer merkis skráð við skráningu kattar.

Við leyfisveitingu skal skrá ketti á nafn og heimili lögráða umráðamanns sem hefur lögheimili í sveitarfélaginu og skal kötturinn haldinn á heimili umráðamanns. Útgefið leyfi er óframseljanlegt. Ekki er leyfilegt að hafa fleiri en þrjá ketti, eldri en fjögurra mánaða, á sama heimili. Umráðamaður kattar má ekki hafa verið sviptur leyfi til dýrahalds með dómi fyrir brot á lögum um velferð dýra, nr. 55/2013. Við leyfisveitingu og skráningu kattar getur sveitarfélagið leitað umsagnar lögreglu og annarra heilbrigðiseftirlitssvæða telji það ástæðu til.

Við skráningu kattar getur sveitarstjórn leitað umsagnar lögreglu, Matvælastofnunar og annarra sveitarfélaga og heilbrigðiseftirlitssvæða telji það ástæðu til.

14. gr. Gögn sem þarf að framvísa við leyfisumsókn fyrir ketti.

Umsókn um leyfi til kattahalds skal berast í gegnum heimasíðu Norðurþings og skulu eftirfarandi gögn lögð fram við skráningu kattar:

  1. Upplýsingar um heiti, fæðingardag, kyn, tegund og önnur einkenni kattar.
  2. Mynd af kettinum.
  3. Vottorð frá dýralækni um örmerki (einstaklingsmerkingu) kattar, sbr. 1. mgr. 22. gr. laga um velferð dýra, nr. 55/2013, og 11. gr. reglugerðar um velferð gæludýra, nr. 80/2016.

Skilyrði fyrir að veitt sé leyfi fyrir ketti er að gögn skv. 1. mgr. hafi verið lögð fram af hálfu umsækjanda og leyfisgjald greitt samkvæmt gjaldskrá sveitarfélagsins.

Sveitarfélaginu er heimilt að hafna beiðni um leyfi fyrir ketti ef umsækjandi hefur áður ítrekað gerst brotlegur við samþykkt um kattahald í sveitarfélaginu eða annars staðar.

15. gr. Skyldur eigenda og umráðamanna katta.

Auk einstaklingsmerkingar skulu kettir bera hálsól með upplýsingum um símanúmer eiganda.

Lausaganga katta í þéttbýli er með öllu óheimil. Heimilt er þó að hafa ketti úti við ef þeir eru í beisli með taumi eða í útigerði.

Umráðamaður kattar skal tilkynna sveitarfélaginu innan mánaðar um aðsetursskipti eða dauða kattar.

16. gr. Föngun katta.

Sveitarstjórn er heimilt að láta fanga ketti í eftirfarandi tilfellum:

  1. Ef köttur er ómerktur.
  2. Ef kvartað er undan lausagöngu katta.
  3. Ef köttur finnst innandyra hjá nágranna í leyfisleysi, á öðrum óheimilum stað eða í fjöleignar­húsi þar sem skortir tilskilið samþykki annarra íbúðareigenda.

Kettir sem fangaðir eru skulu færðir í dýrageymslu

Ef merktir kettir eru teknir úr umferð skv. 2. og 3. tölulið 1. mgr. skal það tilkynnt umráðamanni. Komi ítrekað til handsömunar á merktum ketti sem og ómerktum vegna ónæðis telst það vera brot á samþykkt þessari. Ef umráðamaður vitjar ekki dýrsins innan 7 daga frá því að honum var tilkynnt um handsömun þess eða ef umráðamaður finnst ekki innan viku er sveitarfélaginu heimilt að ráðstafa kettinum til nýs eiganda, selja hann gegn áföllum kostnaði eða að öðrum kosti skal hann aflífaður án bóta. Köttur sem hefur verið handsamaður ítrekað skal færður í dýrageymslu og því aðeins afhentur umráðamanni að öll skilyrði fyrir kattahaldi skv. 14. gr. séu uppfyllt. Umráðamaður ber allan kostnað af handsömun, vörslu og fóðrun kattarins, sem og aflífun hans ef til hennar kemur samkvæmt gjaldskrá sveitarfélagsins.

Umráðamaður ómerkts kattar sem gefur sig fram skal því aðeins fá köttinn afhentan að hann hafi sótt um leyfi fyrir kettinum, greitt leyfisgjald vegna hans og uppfyllt öll skilyrði samþykktar þessarar fyrir leyfi til kattahalds.

Köttur sem ekki er einstaklingsmerktur í samræmi við 22. gr. laga um velferð dýra, nr. 55/2013, telst vera hálfvillt dýr. Í þeim tilvikum sem hálfvilltir kettir eru handsamaðir er sveitarfélaginu heimilt að ráðstafa kettinum til nýs eiganda, selja hann gegn áföllnum kostnaði eða aflífa án bóta eftir sjö sólarhringa frá handsömun.

17. gr. Aðgerðir gegn hálfvilltum köttum.

Meiriháttar föngun hálfvilltra katta í þéttbýliskjörnum skal auglýsa með a.m.k. viku fyrirvara.

Eftir sjö sólarhringa frá handsömun er sveitarfélaginu heimilt að ráðstafa hálfvilltum ketti til nýs eiganda, selja hann gegn áföllnum kostnaði eða aflífa án bóta.

V. KAFLIÖnnur gæludýr.

18. gr. Gæludýr önnur en kettir og hundar.

Umráðamönnum gæludýra annarra en hunda og katta er skylt að koma í veg fyrir að dýr þeirra sleppi úr haldi. Gerist það skal þegar gera ráðstafanir til að handsama dýrið.

Umráðamenn gæludýra sem haldin eru utandyra, svo sem kanína eða annarra nagdýra, skulu sjá til þess að dýrin valdi ekki nágrönnum ama svo sem með hávaða eða óhreinindum. Skulu þeir tryggja að dýrin geti ekki nagað sig út úr búri eða aðhaldi.

Kanínur skulu einstaklingsmerktar skv. 1. mgr. 22. gr. laga um velferð dýra, nr. 55/2013. Ómerktar kanínur eru skilgreindar sem hálfvillt dýr, við handsömun er sveitarfélaginu heimilt að ráðstafa hálfvilltum kanínum til nýs eiganda, selja fyrir áföllnum kostnaði eða aflífa án bóta.

VI. KAFLIÝmis ákvæði.

19. gr. Gjaldtaka.

Sveitarstjórn er heimilt að innheimta leyfis- og eftirlitsgjöld í samræmi við gjaldskrá sem sveitarfélagið setur skv. 5. mgr. 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998. Sveitarstjórn skal láta birta gjaldskrána í B-deild Stjórnartíðinda.

Leyfisgjald skal í fyrsta sinn greitt við skráningu hunda og katta og síðan árlega á gjalddaga sem sveitarfélagið ákveður. Leyfisgjaldi er ætlað að standa undir kostnaði sveitarfélagsins við hunda- og kattahald og framkvæmd samþykktar þessarar. Í gjaldskrá skal koma fram hvað er innifalið í gjaldinu.

Í gjaldskrá skal kveðið á um handsömunar- og vörslugjald vegna handsömunar gæludýra sem tekin eru í vörslu á vegum sveitarfélagsins vegna brota á samþykkt þessari.

Ekki þarf að greiða leyfisgjald af hundum og köttum í dreifbýli. Eigendur hunda og katta í dreifbýli skulu greiða þann kostnað sem af lögbundnum hreinsunum og læknisaðgerðum hlýst eftir því sem við á. Sömuleiðis ber eiganda að greiða þann kostnað sem af hlýst, ef hundurinn eða kötturinn er tekinn í vörslu eða hann aflífaður.

Sveitarstjórn getur fellt niður leyfisgjald eða ákveðið lægra gjald fyrir nytjahunda, þ.e. hunda sem notaðir eru til löggæslu- eða björgunarstarfa og minkahunda í eigu samningsbundinna veiðimanna hjá sveitarfélaginu. Af leiðsöguhundum sem blindir eða sjóndaprir nota vegna fötlunar sinnar skal ekki greiða leyfisgjald.

20. gr. Þvingunarúrræði og afturköllun leyfa.

Um valdsvið og þvingunarúrræði fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.

Sveitarstjórn Norðurþings er heimilt að afturkalla leyfi til hunda- og kattahalds ef vanhöld verða á greiðslu eftirlitsgjalds sem og ef umráðamaður hefur brotið gegn samþykkt þessari. Einnig er heimilt að afturkalla öll veitt leyfi telji sveitarfélagið það nauðsynlegt í þágu hollustuhátta og öryggis. Jafnframt getur sveitarfélagið, telji það og héraðsdýralæknir brýna þörf á, bannað eða takmarkað hunda- og kattahald í dreifbýli.

Skráðir eigendur eða umráðamenn gæludýra sem brjóta gegn ákvæðum samþykktar þessarar skulu jafnan sæta skriflegri áminningu af hálfu heilbrigðisnefndar og gefinn hæfilegur frestur til úrbóta.

Ef skráður umráðamaður hunda og katta vanrækir skyldur sínar eða brýtur ítrekað eða alvarlega gegn ákvæðum samþykktar þessarar eða öðrum reglum sem gilda um hunda- og kattahald getur heilbrigðisnefnd bannað viðkomandi að halda gæludýrið og látið fjarlægja dýrið.

Umráðamanni dýrs er skylt að greiða kostnað sem leiðir af brotum á samþykkt þessari.

21. gr. Viðurlög og kæruheimild.

Um viðurlög vegna brota á samþykkt þessari fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998. Brot gegn samþykkt þessari varða sektum rúmist þau jafnframt innan refsiákvæða hlutaðeigandi laga, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Skulu þau brot sæta þeirri málsmeðferð sem boðin er í lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008.

Um kæruheimildir fer samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.

22. gr. Gildistaka.

Samþykkt þessi staðfestist hér með skv. 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, til þess að öðlast gildi við birtingu. Frá sama tíma fellur úr gildi samþykkt um hunda- og kattahald í Norðurþingi, nr. 160/2019.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 19. febrúar 2026.

F. h. r.

Kjartan Ingvarsson.

Trausti Ágúst Hermannsson.

B deild — Útgáfudagur: 4. mars 2026

Tengd mál