Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Dómsmálaráðuneytið
Málaflokkur
Dómsmál, Lögreglumál
Undirritunardagur
7. maí 2026
Útgáfudagur
15. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 43/2026
7. maí 2026
LÖG
um breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili, nr. 85/2011 (rafrænt eftirlit o.fl.).
Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:
1. gr.
Á eftir 2. gr. laganna kemur ný grein, 2. gr. a, svohljóðandi:
Með rafrænu eftirliti samkvæmt lögum þessum er átt við þau tilvik þegar manni sem sætir ákvörðun um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili er gert að hafa á sér staðsetningarbúnað svo að unnt sé að sannreyna að hann hlíti þeirri ákvörðun.
2. gr.
Á eftir 5. gr. laganna kemur ný grein, 5. gr. a, svohljóðandi:
Heimilt er að beita rafrænu eftirliti ef grunur er um að sakborningur sem sætir ákvörðun um nálgunarbann skv. 4. gr. og/eða brottvísun af heimili skv. 1. og 2. mgr. 5. gr. muni brjóta gegn slíkri ákvörðun og rafrænt eftirlit telst nauðsynlegt til að tryggja að ákvörðunin verði virt.
Sakborningi er skylt að veita nauðsynlega aðstoð og fylgja fyrirmælum lögreglu svo að rafrænu eftirliti verði komið á, það framkvæmt og því hlítt, þar á meðal að tryggja að búnaðurinn sé hlaðinn og merkjasending berist frá búnaðinum.
Einungis með atbeina lögreglu er heimilt að eiga við búnaðinn þannig að það sé til þess fallið að hann sendi frá sér viðvörun. Viðvera innan þess svæðis sem fellur undir nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili er einungis heimil með leyfi lögreglu.
Hjá embætti ríkislögreglustjóra og lögregluembættum er vinnsla persónuupplýsinga um sakborninga sem sæta rafrænu eftirliti með nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili heimil, þar á meðal þeirra upplýsinga sem viðkvæmar geta talist, að því marki sem slík vinnsla telst nauðsynleg vegna starfsemi viðkomandi stofnana. Um meðferð persónuupplýsinga samkvæmt þessari grein fer eftir lögum um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi.
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um rafrænt eftirlit með nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili, þar á meðal um hlutverk embættis ríkislögreglustjóra og annarra lögregluembætta hvað eftirlitið varðar, um tæknilega útfærslu rafræns eftirlits hjá því lögregluembætti sem tekur ákvörðunina, svo sem um ásetningu búnaðar, viðhald og bilanir, um vinnslu persónuupplýsinga hjá embætti ríkislögreglustjóra og öðrum lögregluembættum, skilyrði rafræns eftirlits og skyldur sakbornings sem sætir rafrænu eftirliti.
Ríkislögreglustjóra er heimilt að setja reglur um framkvæmd rafræns eftirlits með nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili.
3. gr.
Á eftir orðunum „brottvísun af heimili“ í 1. málsl. 1. mgr. og 2. mgr. 6. gr. laganna kemur: og rafrænu eftirliti.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:
- Orðin „á heimilisvarnarþingi brotaþola“ í 1. mgr. falla brott.
- Á eftir orðunum „brottvísun af heimili“ í 1. mgr. kemur: og rafrænt eftirlit.
- Á eftir orðunum „brottvísun af heimili“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: og, ef við á, rafrænt eftirlit með brottvísun.
- Á eftir orðinu „nálgunarbann“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: og, ef við á, rafrænt eftirlit með brottvísun.
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Rafrænu eftirliti skal markaður ákveðinn tími, þó ekki lengri en kveðið er á um í 3. og 4. mgr. Ákvarðaður tími rafræns eftirlits getur náð yfir hluta eða allan þann tíma sem nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili er ákvarðaður skv. 3. og 4. mgr.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 9. gr. laganna:
- Á eftir orðunum „brottvísun af heimili“ í 1. málsl. kemur: svo og, ef við á, rafrænt eftirlit.
- Á eftir orðunum „og/eða brottvísunar“ í 2. málsl. kemur: svo og, ef við á, rafræns eftirlits.
6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. laganna:
- Á eftir tilvísuninni „4. gr. og/eða 5. gr.“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: og, ef við á, 1. mgr. 5. gr. a.
- Á eftir orðunum „og/eða brottvísunina“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: og, ef við á, rafræna eftirlitið.
- Á eftir tilvísuninni „skv. 4. gr. og/eða 5. gr.“ í 2. mgr. kemur: og, ef við á, 1. mgr. 5. gr. a.
- Á eftir orðunum „brottvísun af heimili“ í 3. mgr. kemur: og, ef við á, rafrænt eftirlit.
7. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. laganna:
- Á eftir tilvísuninni „5. gr.“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: og, ef við á, rafrænt eftirlit með brottvísun.
- Við 2. málsl. 1. mgr. bætist: og, ef við á, ákvörðun um framlengingu rafræns eftirlits með brottvísun.
- Á eftir tilvísuninni „4. gr.“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: og, ef við á, rafrænt eftirlit með nálgunarbanni.
- Við 3. málsl. 2. mgr. bætist: og, ef við á, ákvörðun um framlengingu rafræns eftirlits með nálgunarbanni.
8. gr.
Á eftir orðinu „heimili“ í 1. málsl. 3. mgr. 15. gr. laganna kemur: og, ef við á, ákvörðun um rafrænt eftirlit.
9. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
10. gr.Breytingar á öðrum lögum.
Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á 1. mgr. 232. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940:
- Á eftir orðunum „brottvísun af heimili“ í fyrra sinn í 1. málsl. kemur: og, ef við á, rafrænu eftirliti.
- Á eftir 1. málsl. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Sama gildir þegar maður af ásetningi eða stórfelldu gáleysi hindrar rafrænt eftirlit samkvæmt sömu lögum.
Gjört í Reykjavík, 7. maí 2026.
Halla Tómasdóttir.
(L. S.)
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.
A deild — Útgáfudagur: 15. maí 2026