Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Hveragerðisbær
Málaflokkur
Skipulagsmál, Hveragerði
Undirritunardagur
20. nóvember 2009
Útgáfudagur
4. desember 2009
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 974/2009
20. nóvember 2009
AUGLÝSING
um breytingu á deiliskipulagi í Hveragerðisbæ.
Samkvæmt skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997 hefur bæjarstjórn Hveragerðisbæjar þann 16. júní árið 2000 samþykkt óverulega breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Hveragerðis. Breytingin felur í sér breytingu á lóðarmörkum lóðarinnar Breiðamörk 25b og byggingarreitum lóðanna Breiðamörk 25a og 25b. Einnig er fyrirkomulagi bílastæða á miðbæjarsvæðinu breytt.
Hveragerði, 20. nóvember 2009.
Guðmundur
F.
Baldursson,
skipulagsfulltrúi
Hveragerðisbæjar.
B deild - Útgáfud.: 4. desember 2009