Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Umferðarmál
Undirritunardagur
29. nóvember 2022
Útgáfudagur
30. nóvember 2022
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1299/2022
29. nóvember 2022
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 605/2010 um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit.
1. gr.
Við 2. mgr. 56. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, svohljóðandi:
- Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1057 frá 15. júlí 2020 um sértækar reglur að því er varðar tilskipun 96/71/EB og tilskipun 2014/67/ESB um útsendingu ökumanna á sviði flutninga á vegum og um breytingu á tilskipun 2006/22/EB að því er varðar kröfur um framfylgd og á reglugerð (ESB) nr. 1024/2012, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 188/2022 frá 10. júní 2022, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 66, frá 13. október 2022, bls. 37-38.
2. gr.
Með reglugerð þessari er innleidd tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1057 frá 15. júlí 2020 um sértækar reglur að því er varðar tilskipun 96/71/EB og tilskipun 2014/67/ESB um útsendingu ökumanna á sviði flutninga á vegum og um breytingu á tilskipun 2006/22/EB að því er varðar kröfur um framfylgd og á reglugerð (ESB) nr. 1024/2012, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 188/2022 frá 10. júní 2022, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 66, frá 13. október 2022, bls. 37-38.
3. gr. Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 54. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 29. nóvember 2022.
F. h. r.
Ólafur Kr. Hjörleifsson.
Jónas Birgir Jónasson.
B deild - Útgáfud.: 30. nóvember 2022