Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Akureyrarbær

Málaflokkur

Skipulagsmál, Akureyri

Undirritunardagur

22. febrúar 2024

Útgáfudagur

7. mars 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 299/2024

22. febrúar 2024

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Akureyrarbæ.

Breyting á deiliskipulagi fyrir Innbæinn.
Skipulagsráð Akureyrarbæjar samþykkti 10. janúar 2024 breytingu á deiliskipulagi fyrir Innbæinn.
Breytingin tekur til Aðalstrætis 12b og felur í sér að staðsetning innan byggingarreits sé frjáls og að stigar, pallar og skyggni megi ná allt að 2 metra út fyrir byggingarreit. Einnig felur breytingin í sér að leyfileg mænis- og vegghæð hækki um 30 cm svo mænis- og vegghæð eftir breytingu verður 8,8 m og 5,9 m. Að endingu hækkar nýtingarhlutfall lóðarinnar úr 0,25 í 0,3.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

Breyting á deiliskipulagi fyrir Móahverfi.
Skipulagsráð Akureyrarbæjar samþykkti 10. janúar 2024 breytingu á deiliskipulagi fyrir Móahverfi.
Breytingin tekur til Lækjarmóa 2-8 og felur í sér að byggingarmagn í kjallara sé aukið úr 3.200 m² í 3.700 m².
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

Breyting á deiliskipulagi fyrir Hrafnabjörg.
Skipulagsráð Akureyrarbæjar samþykkti 31. janúar 2024 breytingu á deiliskipulagi fyrir Hrafnabjörg.
Breytingin tekur til Hrafnabjarga 8 og felur í sér að lóðin stækki um 4,2 metra til suðurs og 2,5 metra til vesturs.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

Breyting á deiliskipulagi fyrir miðbæ.
Skipulagsráð Akureyrarbæjar samþykkti 14. febrúar 2024 breytingu á deiliskipulagi fyrir miðbæ.
Breytingin tekur til Oddagötu 11 og felur í sér að leyfilegur gólfkóti bílskúrs er lækkaður um 0,9 metra.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

Breyting á deiliskipulagi fyrir vöruhöfn Oddeyrar.
Skipulagsráð Akureyrarbæjar samþykkti 14. febrúar 2024 breytingu á deiliskipulagi fyrir vöruhöfn Oddeyrar.
Breytingin tekur til Hjalteyrargötu 12 og felur í sér að byggingarreitur á norðaustur horni lóðarinnar stækkar úr 16 x 25 metrum í 16 x 28 metra og fer því úr 400 m² upp í 448 m². Heimilt er að fullnýta byggingarreitinn.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarbæjar, 22. febrúar 2024,

Einar Sigþórsson verkefnastjóri skipulagsmála.

B deild - Útgáfud.: 7. mars 2024

Tengd mál