Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Málaflokkur

Heilbrigðiseftirlit, Atvinnustarfsemi, Starfsleyfi

Undirritunardagur

11. júní 2026

Útgáfudagur

12. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 677/2026

11. júní 2026

REGLUGERÐ

um (4.) breytingu á reglugerð nr. 830/2022 um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.

1. gr.

Eftirfarandi starfsemi er bætt við í stafrófsröð við viðauka reglugerðarinnar:

Jarðbor undir 1 MW.
Osteópati.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr.

  1. Á eftir orðinu „heilbrigðisnefnd“ í 2. mgr. kemur: eða Umhverfis- og orkustofnun.
  2. 1. málsl. 3. mgr. skal eftirleiðis orðast svo: Þegar fullnægjandi upplýsingar, yfirlýsing rekstraraðila og starfsemi uppfyllir skráningu er skráningin staðfest og skráning atvinnurekstrar tilkynnt til rekstraraðila og eiganda fasteignar.
  3. 2. málsl. 3. mgr. fellur brott.

3. gr.

1. málsl. 8. gr. skal eftirleiðis orðast svo:

Heilbrigðisnefnd og Umhverfis- og orkustofnun fara með eftirlit með skráningarskyldum atvinnurekstri, þ. á m. að starfsemi sé rétt skráð.

4. gr.

Á eftir orðinu „Heilbrigðisnefnd“ í 2. mgr. 9. gr. kemur: eða Umhverfis- og orkustofnun.

5. gr.

Á eftir orðinu „heilbrigðisnefnd“ í 1. mgr. og tvisvar í 2. mgr. 11. gr. kemur: eða Umhverfis- og orkustofnun.

6. gr. Lagastoð, gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. mgr. 8. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. og 1. og 20. tölul. 5. gr. laganna. Reglugerðin er sett að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga um hlutverk heilbrigðisnefnda við framkvæmd reglugerðar þessarar.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 11. júní 2026.

Jóhann Páll Jóhannsson.

Stefán Guðmundsson.

B deild — Útgáfudagur: 12. júní 2026

Tengd mál