Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Ríkisskattstjóri
Málaflokkur
Skattar - gjöld - tollar
Undirritunardagur
18. mars 2016
Útgáfudagur
21. mars 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 243/2016
18. mars 2016
AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um skil og skilamáta á FATCA upplýsingum á árinu 2016 vegna tilkynningaskyldra bandarískra reikninga.
Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að tilkynningaskyldar íslenskar fjármálastofnanir, sbr. o-lið 1. tölul. 1. gr. FATCA samnings Íslands og Bandaríkjanna, sbr. auglýsingu nr. 4/2015 í C-deild Stjórnartíðinda, skulu skila upplýsingum til ríkisskattstjóra í samræmi við ákvæði FATCA samningsins eins og nánar er tilgreint í þessari auglýsingu eigi síðar en 31. maí 2016.
Upplýsingunum skal skilað rafrænt samkvæmt lýsingu á vef ríkisskattstjóra á slóðinni: https://www.rsk.is/fagadilar/hugbunadarhus/framtalsgogn/.
-
Tilkynningaskylda um reikninga bandarískra aðila (innlánsreikninga, vörslureikninga, vátryggingasamninga að tilteknu peningavirði og lífeyrissamninga).
Skila skal eftirfarandi upplýsingum um innlánsreikninga í eigu einstaklinga og lögaðila ef áreiðanleikakönnun, sbr. tilvitnaðan FATCA samning milli Íslands og Bandaríkjanna leiðir í ljós að reikningshafi sé bandarískur aðili:a) nafn, heimilisfang og bandaríska skattkennitölu sérhvers tilgreinds bandarísks einstaklings sem á eða fer með tilkynningaskyldan reikning, b) nafn, heimilisfang og bandaríska skattkennitölu sérhvers tilgreinds bandarísks lögaðila sem er á eða fer með tilkynningaskyldan reikning, c) reikningsnúmer eða ígildi þess, d) heildarfjárhæð greiddra vaxta á árinu 2015, e) reikningsstöðu í árslok 2015. -
Innlánsreikningar.
Ef um tilkynningaskyldan innlánsreikning er að ræða skal ennfremur veita upplýsingar um heildarfjárhæð þeirra vaxta sem voru greiddir eða tekjufærðir á reikninginn á árinu 2015. -
Vörslureikningar.
Ef um tilkynningaskyldan vörslureikning er að ræða skal ennfremur veita eftirfarandi upplýsingar:a) heildarfjárhæð þeirra vaxta sem voru greiddir eða tekjufærðir á reikninginn á árinu 2015, b) heildarfjárhæð arðs sem var greiddur eða tekjufærður á reikninginn á árinu 2015, c) heildarfjárhæð annarra tekna sem voru greiddar eða tekjufærðar á reikninginn á árinu 2015, þó ekki söluhagnað. -
Stjórnandi
aðilar.
Skila skal upplýsingum um nöfn, heimilisföng og bandarískar skattkennitölur bandarískra aðila sem teljast stjórnandi aðilar í lögaðilum sem ekki eru bandarískir aðilar ef slíkir lögaðilar eru reikningshafar í íslenskum tilkynningaskyldum fjármálastofnunum. -
Óvirkir
erlendir
lögaðilar
sem
eru
ekki
fjármálastofnanir
(e.
Passive
NFFE),
sbr.
3.
tölul.
B-liðar
kafla
VI
í
I.
viðauka
við
FATCA
samning
Íslands
og
Bandaríkjanna.
Sé reikningshafi óvirkur erlendur lögaðili sem ekki er fjármálastofnun skal veita upplýsingar um nöfn, heimilisföng og bandarískar skattkennitölur þeirra eigenda lögaðilans sem teljast bandarískir aðilar. -
Andstöðureikningar
(e.
Recalcitrant
Accounts),
sbr.
2.
tölul.
4.
gr.
FATCA
samnings
Íslands
og
Bandaríkjanna.
Veiti reikningshafi ekki nauðsynlegar upplýsingar um mögulega skattskyldu sína í Bandaríkjunum skal tilkynningaskyld fjármálastofnun fara með reikning hans sem andstöðureikning og veita jafnframt allar nauðsynlegar upplýsingar, sbr. tölul. 1-5 hér að framan. -
Núllskýrslur.
Tilkynningaskyldar fjármálastofnanir sem ekki hafa neina reikninga í eigu eða umráðum bandarískra aðila skulu skila núllskýrslum til ríkisskattstjóra í samræmi við skilalýsingu.
Ef skilað er röngum eða gölluðum upplýsingum, eða ef þær eru á annan hátt ekki samkvæmt skilalýsingu, þarf tilkynningaskylda fjármálastofnunin, eftir atvikum, að greiða þann kostnað sem af því kann að hljótast.
Allar fyrirspurnir um FATCA gagnaskil má senda á netfangið: gagnaskil@rsk.is.
Auglýsing þessi er birt samkvæmt 92., 93. og 94. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, og öðlast þegar gildi.
Reykjavík, 18. mars 2016.
Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.
B deild - Útgáfud.: 21. mars 2016