Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir
Undirritunardagur
13. janúar 2023
Útgáfudagur
30. janúar 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 56/2023
13. janúar 2023
REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, nr. 800/2015.
1. gr. Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
| 1.21 | Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/1020 frá 27. júní 2022 um framkvæmd ákvörðunar 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 1.21. | |
| 1.22 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/2241 frá 14. nóvember 2022 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 1.22. | |
| 1.23 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/2377 frá 5. desember 2022 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 1.23. | |
| 1.24 | Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/2398 frá 8. desember 2022 um framkvæmd ákvörðunar 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 1.24. | |
| 1.25 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/2412 frá 8. desember 2022 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 1.25. | |
| 2.23 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/1009 frá 27. júní 2022 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 1183/2005 varðandi þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 2.23. | |
| 2.24 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/2237 frá 14. nóvember 2022 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 1183/2005 varðandi þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 2.24. | |
| 2.25 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/2373 frá 5. desember 2022 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 1183/2005 varðandi þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 2.25. | |
| 2.26 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/2397 frá 8. desember 2022 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 1183/2005 varðandi þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 2.26. | |
| 2.27 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/2401 frá 8. desember 2022 um framkvæmd 9. gr. í reglugerð ráðsins (EB) nr. 1183/2005 varðandi þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 2.27. |
2. gr. Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 13. janúar 2023.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Martin Eyjólfsson.
Fylgiskjöl.
(sjá
PDF-skjal)
B deild - Útgáfud.: 30. janúar 2023