Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Málaflokkur
Menntamál, Framhaldsskólar
Undirritunardagur
23. júní 2025
Útgáfudagur
8. júlí 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 776/2025
23. júní 2025
AUGLÝSING
um staðfestingu námsbrautarlýsinga framhaldsskóla.
1. gr.
Mennta- og barnamálaráðherra hefur skv. 23. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, staðfest eftirfarandi námsbrautarlýsingar. Staðfestingin felur í sér að lýsing á uppbyggingu námsbrauta, tengslum við atvinnulíf og/eða önnur skólastig, uppbyggingu náms á hæfniþrep, inntökuskilyrðum og skilyrðum um framvindu náms, grunnþáttum og lykilhæfni og námsmati sé í samræmi við aðalnámskrá framhaldsskóla. Staðfestingin tekur ekki til einstakra áfangalýsinga. Hinar staðfestu námsbrautarlýsingar teljast þar með hluti af aðalnámskrá framhaldsskóla, sbr. auglýsingu nr. 674/2011.
Skólar bera ábyrgð á að áfangalýsingar námsbrauta og kennsla falli að hæfniviðmiðum brautar og þeim ramma sem aðalnámskrá setur skólastarfi.
2. gr.
| Heiti námsbrautar | Raðnúmer |
| Leiðsögunám, hæfniþrepi 4 | (25-569-4-11) |
3. gr.
Auglýsing þessi öðlast þegar gildi.
Mennta- og barnamálaráðuneytinu, 23. júní 2025.
F. h. r.
Theódóra Sigurðardóttir.
Nanna Kristjana Traustadóttir.
B deild — Útgáfudagur: 8. júlí 2025