Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Atvinnuvegaráðuneytið
Málaflokkur
Sjávarútvegur, Landhelgismál
Undirritunardagur
9. september 2025
Útgáfudagur
19. september 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1000/2025
9. september 2025
REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 860/2025, um leyfilegan heildarafla og veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2025/2026 og almanaksárið 2026.
1. gr.
Í töflu í 1. gr. reglugerðarinnar er gerð breyting, svohljóðandi:
| Tegund | Ráðlagður heildarafli | Frádag vegna heimilda erlendra ríkja og annarra ráðstafana |
Leyfilegur heildarafli | Dregið frá heildarafla, skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%) |
Fiskistofa úthlutar á grundvelli aflahlutdeildar |
| Úthafsrækja | 4.537 | 0 | 4.537 | 240 | 4.297 |
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 3. og 16. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, 30. gr. laga um umgengni um nytjastofna sjávar, nr. 57/1996, 19. gr. laga um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, nr. 151/1996, og 14. gr. laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 9. september 2025.
Hanna Katrín Friðriksson.
Skúli Kristinn Skúlason.
B deild — Útgáfudagur: 19. september 2025