Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Velferðarráðuneytið (2011-2018)

Málaflokkur

Sjóðir og stofnanir, Húsnæðismál

Undirritunardagur

30. janúar 2018

Útgáfudagur

1. febrúar 2018

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 116/2018

30. janúar 2018

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um stofnframlög ríkis og sveitarfélaga, húsnæðissjálfseignarstofnanir og almennar íbúðir, nr. 555/2016.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. reglugerðarinnar:

  1. Orðið „birtan“ fyrir framan orðið fermetra í 1. mgr. fellur brott og í stað kemur: brúttó.
  2. Á eftir orðinu „fermetra“ kemur: rýma byggingar í lokunarflokki A og B, skv. ÍST50.
  3. Í stað „265“ í 1. mgr. kemur: 248; og í stað tölunnar „6“ í sömu mgr. kemur: 5,6.
  4. Á eftir 2. málsl. 1. mgr. kemur nýr málsliður svohljóðandi: Íbúðalánasjóður metur hagkvæmni og hvort hlutfall sameignar sé eðlilegt miðað við fyrirhuguð not húsnæðis.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 9. mgr. 11. gr. laga um almennar íbúðir með síðari breytingum, tekur þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 30. janúar 2018.

Ásmundur Einar Daðason
félags- og jafnréttismálaráðherra.

Ellý Alda Þorsteinsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 1. febrúar 2018

Tengd mál