Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

13. desember 2021

Útgáfudagur

27. desember 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1533/2021

13. desember 2021

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 440/2018 um doktorsnám við menntavísindasvið Háskóla Íslands.

1. gr.

Á eftir 3. ml. 1. mgr. 14. gr. reglnanna bætist við nýr málsliður, svohljóðandi: Verði ágreiningur meðal dómnefndarfulltrúa við doktorsvörn um hvort veita skuli doktorsnafnbót fer um hann samkvæmt verklagsreglu sem háskólaráð setur, sbr. 70. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.

2. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, eru settar samkvæmt heimild í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. 68. og 69. gr. reglna nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 13. desember 2021.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 27. desember 2021

Tengd mál