Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Velferðarráðuneytið
Málaflokkur
Sjóðir og stofnanir, Húsnæðismál
Undirritunardagur
5. október 2017
Útgáfudagur
31. október 2017
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 912/2017
5. október 2017
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 7/2010, um útleigu uppboðsíbúða Íbúðalánasjóðs.
1. gr.
Á eftir 2. mgr. 1. gr. kemur ný málsgrein, 3. mgr., svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. skal Íbúðalánasjóður, á tímabilinu 1. ágúst 2017 til og með 31. júlí 2018, leigja áfram þær eignir sem þegar eru í útleigu þótt hagkvæmt sé að selja þær á almennum markaði. Á tímabilinu er sjóðnum þó heimilt að selja því sveitarfélagi, sem eignin er í, eignina óski það eftir því.
2. gr.
Í stað orðanna „kærunefndar húsnæðismála“ í 7. gr. kemur: úrskurðarnefndar velferðarmála.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 8. tölul. 9. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, öðlast þegar gildi.
Velferðarráðuneytinu, 5. október 2017.
Þorsteinn
Víglundsson
félags-
og
jafnréttismálaráðherra.
Ellý Alda Þorsteinsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 31. október 2017