Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi

Undirritunardagur

10. júní 2022

Útgáfudagur

27. júní 2022

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 760/2022

10. júní 2022

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 381/2019 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Eftirtaldar reglugerðir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins skulu gilda hér á landi með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2021 frá 19. mars 2021 sem birt er sem fylgiskjal 1 með reglugerð þessari:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/236 frá 21. desember 2020 um breytingu á tæknilegum stöðlum sem mælt er fyrir um í framseldri reglugerð (ESB) 2016/2251 að því er varðar tímasetninguna þegar tilteknar verklagsreglur um áhættustýringu taka gildi að því er varðar skipti á tryggingum, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 34/2022 frá 25. maí 2022, bls. 13-17.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/237 frá 21. desember 2020 um breytingu á tæknilegum eftirlitsstöðlum sem mælt er fyrir um í framseldum reglugerðum (ESB) 2015/2205, (ESB) 2016/592 og (ESB) 2016/1178 að því er varðar daginn þegar stöðustofnunarskyldan tekur gildi fyrir tilteknar gerðir samninga. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 34/2022 frá 25. maí 2022, bls. 18-21.

2. gr.

Við reglugerðina bætist fylgiskjal sem er birt með reglugerð þessari.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 15. gr. laga nr. 15/2018, um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár, og öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 10. júní 2022.

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Guðmundur Kári Kárason.

Fylgiskal
(Sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 27. júní 2022

Tengd mál