Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Málaflokkur

Lífeyrissjóðir

Undirritunardagur

28. júní 2026

Útgáfudagur

30. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 61/2026

28. júní 2026

LÖG

um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997 (fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða).

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 34. gr. laganna:

  1. Við 2. málsl. 1. mgr. bætist: og starfa óháð öðrum deildum.
  2. 2. mgr. orðast svo:
    Forstöðumaður endurskoðunardeildar eða sjálfstætt starfandi eftirlitsaðili skal hafa sérþekkingu á sviði innri endurskoðunar, hafa lokið háskólaprófi sem nýtist í starfi og búa yfir nægilegri reynslu til þess að geta sinnt starfi sínu. Hann má ekki hafa verið úrskurðaður gjaldþrota eða hafa í tengslum við atvinnurekstur hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum, samkeppnislögum, lögum um hlutafélög, lögum um einkahlutafélög, lögum um bókhald, lögum um ársreikninga, lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. og ákvæðum laga um staðgreiðslu opinberra gjalda, svo og sérlögum sem gilda um aðila sem lúta opinberu eftirliti með fjármálastarfsemi. Fjármálaeftirlitið getur hvenær sem er tekið hæfi forstöðumanns endurskoðunardeildar eða sjálfstætt starfandi eftirlitsaðila til skoðunar.
  3. Á eftir 4. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
    Lífeyrissjóður skal hafa í þjónustu sinni starfsmann sem er hæfur til þess að annast ráðgjöf til stjórnar um fylgni við lög og stjórnvaldsfyrirmæli sem gilda um starfsemi sjóðsins og um áhrif breytinga á lögum og stjórnvaldsfyrirmælum á starfsemi sjóðsins.

2. gr.

Á eftir 35. gr. a laganna kemur ný grein, 35. gr. b, svohljóðandi:

Útvistun á starfsemi lífeyrissjóðs skal ekki leiða til:

  1. skerðingar á gæðum eftirlitskerfis lífeyrissjóðsins,
  2. óhóflegrar aukningar á rekstraráhættu lífeyrissjóðsins,
  3. takmörkunar á möguleikum Fjármálaeftirlitsins til að sinna eftirliti með því hvort lífeyrissjóðurinn uppfylli skyldur sínar,
  4. skerðingar á samfelldri og fullnægjandi þjónustu við sjóðfélaga.

Lífeyrissjóður skal tilkynna Fjármálaeftirlitinu fyrir fram um útvistun mikilvægra verkefna og um breytingar á þeirri útvistun.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 36. gr. a laganna:

  1. Við 1. tölul. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Skuldabréf samkvæmt lögum um sértryggð skuldabréf og samsvarandi skuldabréf útgefin í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins, í aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum.
  2. C-liður 2. tölul. orðast svo: Hlutir eða hlutdeildarskírteini verðbréfasjóða samkvæmt lögum um verðbréfasjóði eða tilskipun 2009/65/EB um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum að því er varðar verðbréfasjóði (UCITS), enda séu a.m.k. 90% eigna verðbréfasjóðanna samkvæmt síðasta birta ársreikningi eða árshlutareikningi eignir skv. 1. tölul. og a- og b-lið.
  3. Við a-lið 5. tölul. bætist: og önnur verðbréf sem eru ígildi hlutabréfa félaga.
  4. Við a-lið 6. tölul. bætist: og afleiður sem stuðla að skilvirkri stýringu eigna sjóðsins.

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 36. gr. b laganna:

  1. 2. tölul. 1. mgr. fellur brott.
  2. 2. mgr. orðast svo:
    Meiri hluti eigna lífeyrissjóðs skal vera ávaxtaður í:
    1. eignum skv. 1. tölul. 2. mgr. 36. gr. a,
    2. innlánum viðskiptabanka og sparisjóða,
    3. fjármálagerningum sem eru skráðir á skipulegum markaði á Evrópska efnahagssvæðinu eða í aðildarríki Fríverslunarsamtaka Evrópu eða OECD eða hafa verið teknir til viðskipta á annars konar viðskiptavettvangi á Evrópska efnahagssvæðinu eða samsvarandi markaði í öðru ríki sem Fjármálaeftirlitið hefur viðurkennt,
    4. hlutum og hlutdeildarskírteinum sjóða um sameiginlega fjárfestingu þar sem kveðið er á um heimild til innlausnar þeirra að kröfu fjárfestis á hverjum tíma.
  3. 3. mgr. fellur brott.

5. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 36. gr. c laganna:

  1. 2. mgr. fellur brott.
  2. Orðin „og 2.“ í 3. mgr. falla brott.
  3. 6. mgr. fellur brott.
  4. Í stað orðanna „hverju félagi eða hlutdeildarskírteinum eða hlutum annarra sjóða um sameiginlega fjárfestingu eða einstakri deild þeirra“ í 7. mgr. kemur: félagi með hlutabréf sem eru skráð á skipulegum markaði.
  5. 8. mgr. orðast svo:
    Takmörkun skv. 1. mgr. tekur ekki til fjárfestinga í verðbréfasjóðum.

6. gr.

Við 36. gr. e laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Lífeyrissjóður skal haga lausafjárstýringu sinni þannig að hann geti uppfyllt skuldbindingar sínar, sérstaklega hvað varðar væntar lífeyrisgreiðslur sjóðsins.

7. gr.

Á eftir 36. gr. g laganna koma tvær nýjar greinar, 36. gr. h og 36. gr. i, ásamt fyrirsögnum, svohljóðandi:

a. (36. gr. h.)

Verðbréfalán.

Lífeyrissjóði er heimilt að lána skuldabréf og hlutabréf sem hafa verið tekin til viðskipta á viðskiptavettvangi til lánastofnana, verðbréfafyrirtækja eða miðlægra mótaðila sem sæta opinberu varfærniseftirliti í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins eða í aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða OECD. Heimildin nær jafnframt til samsvarandi aðila í öðrum ríkjum, enda teljist eftirlit með starfsemi þeirra sambærilegt að mati Fjármálaeftirlitsins.

Samningur um verðbréfalán skal vera skriflegur. Heimilt er að gera slíkan samning beint eða með milligöngu vörsluaðila verðbréfa eða annars aðila sem hefur starfsleyfi til slíkrar starfsemi og sætir opinberu eftirliti. Uppgjör og afhending verðbréfa og trygginga skal fara fram í viðurkenndu uppgjörskerfi hjá verðbréfamiðstöð innan þeirra ríkja sem um ræðir í 1. mgr. Færslur vegna verðbréfalána skulu merktar sem slíkar í kerfi verðbréfamiðstöðvar.

Lífeyrissjóður skal á hverjum tíma geta krafist þess að verðbréfum sem hann hefur lánað verði skilað með skömmum fyrirvara.

Lántaki skal leggja fram tryggingu sem nemur a.m.k. markaðsverðmæti þeirra verðbréfa sem lánuð eru. Trygging skal endurmetin daglega og viðbótartrygging lögð fram ef verðmæti hennar fellur undir markaðsverðmæti verðbréfanna.

Heimild samkvæmt þessari grein takmarkast við 5% af heildareignum lífeyrissjóðs.

Seðlabanki Íslands getur sett reglur um framkvæmd þessarar greinar, þar á meðal um tryggingu skv. 4. mgr.

b. (36. gr. i.)

Verðmat.

Lífeyrissjóður skal hafa viðeigandi ferla til að styðja við framkvæmd fullnægjandi mats á eignum sjóðsins. Virði eigna skal metið með sama hætti og við gerð ársreiknings, sbr. 40. gr.

8. gr.

Í stað 2. mgr. 37. gr. laganna koma tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:

Ef breytingar á gengi fjármálagerninga eða íslensku krónunnar eða virði fasteigna leiða til þess að fjárfesting lífeyrissjóðs fer fram úr leyfilegum mörkum samkvæmt lögum þessum á ákvæði 1. mgr. ekki við nema að því leyti að tilkynningarskylda til Fjármálaeftirlitsins helst óbreytt. Meðan svo stendur á er lífeyrissjóði óheimilt að auka við fjárfestingu sína umfram leyfileg mörk að undanskildum þegar gerðum skuldbindingum. Sama gildir ef lífeyrissjóður eignast meira en 20% af hlutafé í félagi með hlutabréf sem eru skráð á skipulegum markaði af annarri ástæðu en þeirri að hann hafi aukið við fjárfestingu sína í félaginu.

Nýlega stofnaður lífeyrissjóður eða nýlega stofnuð deild innan lífeyrissjóðs skal ná lögmæltu hámarki innan 12 mánaða frá móttöku fyrsta iðgjalds. Fjármálaeftirlitið getur þó heimilað lengri frest enda sé það augljóslega í þágu sjóðfélaga.

9. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 39. gr. b laganna:

  1. Í stað tilvísunarinnar „2.–5. mgr. 36. gr. b“ í 2. mgr. kemur: 2., 4. og 5. mgr. 36. gr. b, 36. gr. h, 36. gr. i.
  2. Við 3. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Takmörkun skv. 1. málsl. tekur ekki til fjárfestinga í verðbréfasjóðum.

10. gr.

Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2026.

Gjört á Bessastöðum, 28. júní 2026.

Halla Tómasdóttir.

(L. S.)

Daði Már Kristófersson.

A deild — Útgáfudagur: 30. júní 2026

Tengd mál