Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.
Málaflokkur
Skipulagsmál, Rangárvallasýsla
Undirritunardagur
17. apríl 2026
Útgáfudagur
5. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 439/2026
17. apríl 2026
AUGLÝSING
um deiliskipulag í Ásahreppi.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Ásahrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
Deiliskipulagsbreyting, Ás 3, I-8 lóð, L204637, skilgreining frístundalóðar.
Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Áss 3, I-8 lóð, L204637. Í deiliskipulaginu felst að skilgreindur er byggingarreitur á lóðinni þar sem heimilt er að reisa allt að 200 fm frístundahús, 40 fm gestahús og 25 fm geymslu. Umsagnir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim.
Samþykkt í sveitarstjórn 18. febrúar 2026.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 17. apríl 2026.
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,
Sigríður Kristjánsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 5. maí 2026