Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Siglingar - skip

Undirritunardagur

5. nóvember 2024

Útgáfudagur

19. nóvember 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1286/2024

5. nóvember 2024

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 1138/2007 um stofnun Siglingaöryggisstofnunar Evrópu.

1. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður:

  1. Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/1625 frá 14. september 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1406/2002 um stofnun Siglingaöryggisstofnunar Evrópu, sem vísað er til í XIII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 328/2023 frá 8. desember 2023, með fyrirvara um gildissvið EES-samningsins, sbr. sameiginlega yfirlýsingu samningsaðilanna sem fylgir ákvörðuninni. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/1625 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 11 frá 1. febrúar 2024, bls. 479-481 og verður hluti af reglugerð þessari.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 2. mgr. 40. gr. skipalaga nr. 66/2021 og 2. mgr. 10. gr. laga nr. 119/2012 um Samgöngustofu, stjórnsýslustofnun samgöngumála, öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 5. nóvember 2024.

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Vala Hrönn Viggósdóttir.

B deild - Útgáfud.: 19. nóvember 2024

Tengd mál