Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Málaflokkur
Heilbrigðiseftirlit, Skagafjörður
Undirritunardagur
12. febrúar 2026
Útgáfudagur
26. febrúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 189/2026
12. febrúar 2026
SAMÞYKKT
um hesthús og umgengni í hesthúsahverfinu á Sauðárkróki, Skagafirði.
1. gr. Gildissvið.
Samþykkt þessi gildir um hesthúsahverfi, reiðvelli og reiðhöll við Flæðagerði á Sauðárkróki.
2. gr. Byggingar og önnur mannvirki.
Vanda skal til frágangs hesthúsa og þeirra bygginga sem þeim tilheyra, geymslu á heybirgðum og öðru því er lýtur að hirðingu hesta. Í hesthúsum skal einungis halda hesta en ekki annað búfé.
3. gr. Umhverfi, lóðir og gerði.
Umhverfi hesthúsa skal halda þrifalegu og frágangur lóðar skal vera snyrtilegur. Gerði skulu malarborin og þau girt vönduðum girðingum. Á hesthúsalóðum er óheimilt að geyma bifreiðar, dráttarvélar, heyvinnslutæki og aðra lausamuni. Hestakerrur og önnur farartæki, skráð og notkunarhæf, skulu geymd á þar til gerðum og merktum stæðum. Bannað er að skilja hvers konar rusl eftir utanhúss, sem og sagpoka, heyrúllur, plast, byggingarefni og verkfæri.
4. gr. Bílastæði og umferð bíla.
Bílum skal lagt á þar til merktum bílastæðum, utan þeirra brauta þar sem farið er um á hestum. Bannað er að leggja í götum á milli húsa í hesthúsahverfinu, nema upp við hesthúsin þar sem rými er til þess eða á skilgreindum bílastæðum. Umferð ökutækja skal ávallt haga í samræmi við aðstæður.
5. gr. Kerrur og hey.
Kerrum og heyrúllum eða heyböggum skal komið fyrir á þar til gerðum stæðum og þannig frá þeim gengið að ekki stafi af þeim hætta. Eigendur skulu fylgjast reglulega með að allur frágangur sé í lagi, ekki skapist hætta á foki og plast sé ekki laust (blaktandi) á rúllum eða böggum.
6. gr. Lausaganga.
Lausaganga hesta er bönnuð í heshúsahverfinu. Eigendur hesthúsa bera fulla ábyrgð á leigjendum sínum hvað varðar alla umgengni í hesthúsahverfinu og við hesthús.
Hundar skulu ekki vera lausir í hesthúsahverfinu og næsta nágrenni, sbr. samþykkt um hunda- og kattahald í Skagafirði, nr. 788/2025.
7. gr. Taðþrær og gámar.
Tað og moð skal geymt í vökvaheldum taðþróm eða gámum innan viðkomandi lóðar. Þrær eða gámar skulu vera þannig gerð og hirt að ekki stafi af þeim óþrif, mengun eða slysahætta. Í taðþrær má einungis setja hrossatað og moð sem hreinsað er úr hesthúsunum og umhverfis þau.
8. gr. Tæming taðþróa.
Taðþrær skulu tæmdar áður en þær yfirfyllast og bera hesthúsaeigendur ábyrgð á tæmingu þeirra. Óheimilt er að farga taði og moði á svæðinu nema í samráði við sveitarstjórn. Tað og moð skal flytja á þar til ætlaðan móttökustað á vegum sveitarfélagsins eða það nýtt til jarðræktar eða annarra sambærilegra nota eða fargað eins og reglur um góða búskaparhætti kveða á um, sbr. reglugerð um varnir gegn mengun vatns af völdum köfnunarefnissambanda frá landbúnaði og öðrum atvinnurekstri, nr. 804/1999.
9. gr. Frárennsli.
Frárennsli frá salernum og hesthúsum skal tengja fráveitukerfi sveitarfélagsins, sbr. samþykkt um fráveitu í Skagafirði, nr. 1402/2023, sbr. lög um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009, og reglugerð um fráveitur og skólphreinsun, nr. 1450/2025.
10. gr. Úrgangur.
Hesthúsaeigendur skulu koma öllu sorpi, rúlluplasti og öðrum úrgangi á löglegan móttökustað. Rúlluplast skal ekki setja í gáma fyrir almennt sorp. Urðun úrgangsefna í hesthúsahverfinu og öll brennsla úrgangs er bönnuð. Spilliefnum og öðrum hættulegum úrgangi skal halda aðskildum frá öðrum úrgangi og skila inn til móttökustöðvar fyrir spilliefni. Taði sem mengað er af sorpi, umbúðum eða plastefnum skal farga sem almennum úrgangi.
11. gr. Eftirlit.
Eftirlit með framkvæmd samþykktar þessar hefur Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra í samræmi við ákvæði laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
12. gr. Brot og viðurlög.
Um brot á samþykkt þessari fer samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
13. gr. Gildistaka.
Samþykkt þessi, sem samin er af heilbrigðisnefnd Norðurlands vestra og samþykkt af sveitarstjórn Skagafjarðar, staðfestist hér með samkvæmt 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, til þess að öðlast gildi við birtingu. Þrátt fyrir 1. málsl. skal 7. gr. öðlast gildi 1. júlí 2026.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 12. febrúar 2026.
F. h. r.
Kjartan Ingvarsson.
Trausti Ágúst Hermannsson.
B deild — Útgáfudagur: 26. febrúar 2026