Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskólinn á Akureyri

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

22. júní 2023

Útgáfudagur

7. júlí 2023

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 721/2023

22. júní 2023

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 1211/2020 um gjaldskrá Háskólans á Akureyri vegna þjónustu við nemendur og innheimtu og ráðstöfun skrásetningargjalds.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglnanna:

  1. Í 1. tölul. 1. málsl. 3. gr. falla brott orðin „eða með greiðslukröfu í netbanka umsækjandans“.
  2. Í 1. tölul. 4. málsl. 3. gr. falla brott orðin „og staðfesta þar með skrásetningu sína“.
  3. Í 1. tölul. 5. málsl. 3. gr. bætist við á eftir orðinu „Skrásetningartímabili“: skólaársins.
  4. Í 2. tölul. 2. málsl. 3. gr. bætist við á eftir orðunum „til og með 15. ágúst“: vegna innritunar á haustmisseri og frá 11. desember til og með 20. desember vegna innritunar á vormisseri.
  5. Í 2. tölul. 3. málsl. 3. gr. bætist við á eftir orðunum „greitt þann 15. ágúst“: vegna innritunar á haustmisseri og 20. desember vegna innritunar á vormisseri.
  6. Í 2. tölul. 4. málsl. 3. gr. bætist við á eftir orðunum „Falli 15. ágúst“: og 20. desember.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglnanna:

  1. Í 1.2. tölul. 4. gr. fellur brott orðið „haustönn“ og í staðinn kemur: haustmisseri.
  2. Í 1.2. tölul. 4. gr. fellur brott orðið „vorönn“ og í staðinn kemur: vormisseri.

3. gr.

5. gr. reglnanna orðast svo:

Nemendur aðgengi að húsnæði – eingreiðsla kr. 2.000.

Kostnaður felst í notandaleyfi og skráningarferli.

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. reglnanna:

  1. Í stað „kr. 4.500“ í 1. tölul. 6. gr. kemur: kr. 2.500.
  2. Í stað „kr. 50“ í 2. tölul. 6. gr. kemur: kr. 70.
  3. Í stað „kr. 100“ í 2. tölul. 6. gr. kemur: kr. 300.
  4. Í stað „kr. 1.500“ í 3. tölul. 1. málsl. 6. gr. kemur: kr. 2.000.
  5. Í stað „kr. 2.500“ í 3. tölul. 2. málsl. 6. gr. kemur: kr. 3.000.
  6. Í stað „kr. 3.800“ í 3. tölul. 3. málsl. 6. gr. kemur: kr. 4.000.
  7. Í stað „kr. 1.500“ í 3. tölul. 4. málsl. 6. gr. kemur: kr. 2.000.
  8. Í stað „kr. 2.500“ í 3. tölul. 5. málsl. 6. gr. kemur: kr. 3.000.
  9. Við 6. gr. bætist nýr tölul. á eftir 4. tölul. sem hljóðar svo: Skönnun: A4 blöð – einstök blöð báðum megin kr. 2. Þjónustugjaldi er bætt við ef starfsmenn skanna fyrir viðkomandi, kr. 1.000 pr. skönnun.
  10. 5. tölul. verður 6. tölul.
  11. Í 6. tölul. bætist við á eftir orðunum „kr. 60“: Ef prentað eða ljósritað er.
  12. Í 6. tölul. falla brott orðin „Þjónustugjaldi er bætt við ef starfsmenn prenta“.
  13. Í 6. tölul. bætist við á eftir orðunum „fyrir viðkomandi“: er greitt tvöfalt gjald.
  14. Í 6. tölul. falla brott orðin „kr. 10 pr. blað“.

5. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. reglnanna:

  1. Í 1. tölul. 7. gr. bætist við á eftir orðinu „Útprentanir“: og stafrænt afrit.
  2. Í stað „kr. 350“ í 1. tölul. 2. málsl. 7. gr. kemur: kr. 450.
  3. Í stað „kr. 350“ í 1. tölul. 3. málsl. 7. gr. kemur: kr. 450.
  4. Á eftir 3. málsl. 7. gr. bætist nýr málsliður sem hljóðar svo:
    Námskeiðslýsingar pr. blaðsíðu, hámark 1.800 kr. kr. 450
  5. 5. málsl. 7. gr. orðast svo: Námskeiðslýsingar umfram fimm blaðsíður kr. 2.000.
  6. 2. tölul. 7. gr. fellur brott.

6. gr.

Í stað „kr. 5.000“ í 8. gr. reglnanna kemur: kr. 6.000.

7. gr.

12. gr. reglnanna orðast svo:

Reglur þessar, auk viðauka I, sem samþykktar voru í háskólaráði eru settar með stoð í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. einnig 54. gr. reglna nr. 694/2022 fyrir Háskólann á Akureyri, taka þegar gildi.

8. gr.

Reglur þessar, sem samþykktar voru í háskólaráði, eru settar á grundvelli laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, öðlast þegar gildi.

Háskólanum á Akureyri, 22. júní 2023.

Eyjólfur Guðmundsson rektor.

B deild - Útgáfud.: 7. júlí 2023

Tengd mál