Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Velferðarráðuneytið
Málaflokkur
Sjóðir og stofnanir, Húsnæðismál
Undirritunardagur
29. nóvember 2017
Útgáfudagur
30. nóvember 2017
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1052/2017
29. nóvember 2017
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um stofnframlög ríkis og sveitarfélaga, húsnæðissjálfseignarstofnanir og almennar íbúðir nr. 555/2016.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað „4.749.000 kr.“ í 1. mgr. kemur: 5.105.000 kr.
- Í stað „1.187.000 kr.“ í 1. mgr. kemur: 1.276.000 kr.
- Í stað „6.649.000 kr.“ í 1. mgr. kemur: 7.148.000 kr.
- Í stað „5.126.000 kr.“ í 2. mgr. kemur: 5.510.000 kr.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. reglugerðarinnar:
- Fyrir framan orðið „fermetra“ í 1. mgr. kemur orðið: birtan.
- Í stað „220“ kemur: 265 í 1. mgr. og í stað „5“ kemur: 6 í 1. mgr.
- Orðin „með hliðsjón af þróun byggingarkostnaðar á næstliðnu ári“ í 2. mgr. falla brott.
3. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 8. mgr. 10. gr. og 9. mgr. 11. gr. laga um almennar íbúðir, með síðari breytingum, tekur þegar gildi.
Velferðarráðuneytinu, 29. nóvember 2017.
Þorsteinn
Víglundsson
félags-
og
jafnréttismálaráðherra.
Ellý Alda Þorsteinsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 30. nóvember 2017