Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið (2009-2010)

Málaflokkur

Dómsmál

Undirritunardagur

26. febrúar 2010

Útgáfudagur

26. febrúar 2010

Leiðréttingar

26. febrúar 2010

Í pdf-skjali á bls. 2 ekki að vera með

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 11/2010

26. febrúar 2010

LÖG

um breyting á lögum um nauðungarsölu, nr. 90/1991, með síðari breytingum (frestur).

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.

Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Nú er leitað nauðungarsölu á grundvelli 6. gr. á fasteign þar sem gerðarþoli heldur heimili og hefur skráð lögheimili og um er að ræða húsnæði sem ætlað er til búsetu samkvæmt ákvörðun skipulags- og byggingaryfirvalda og ber þá sýslumanni að verða við ósk gerðarþola um að fresta í allt að þrjá mánuði töku ákvörðunar um framhald uppboðs eða ráðstöfun eignar á almennum markaði. Hafi þegar verið ákveðin ráðstöfun slíkrar fasteignar til fullnustu kröfu skv. 6. gr. við framhald uppboðs eða á almennum markaði en uppboði hefur ekki verið lokið eða boð á almennum markaði samþykkt í eign skal sýslumaður að fullnægðum sömu skilyrðum verða við ósk gerðarþola um að fresta þeim aðgerðum í allt að þrjá mánuði.
Ákvæði þetta fellur úr gildi 31. október 2010.

2. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi.

Gjört á Bessastöðum, 26. febrúar 2010.

Ólafur Ragnar Grímsson.
(L. S.)

Ragna Árnadóttir.

A deild - Útgáfud.: 26. febrúar 2010

Tengd mál