Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Ökutæki
Undirritunardagur
31. maí 2023
Útgáfudagur
31. maí 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 527/2023
31. maí 2023
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 414/2021 um skoðun ökutækja.
1. gr.
Við 2. mgr. 50. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, d-liður, svohljóðandi:
- Framseld tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1716 frá 29. júní 2021 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/47/ESB að því er varðar breytingar á tilvísunum í ökutækjaflokka vegna breytinga á löggjöfinni um gerðarviðurkenningu, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 338/2022, 9. desember 2022, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8 frá 26. janúar 2023, bls. 315-317.
2. gr. Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 93. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 31. maí 2023.
F. h. r.
Ólafur Kr. Hjörleifsson.
Gauti Daðason.
B deild - Útgáfud.: 31. maí 2023