Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Hvalfjarðarsveit
Málaflokkur
Skipulagsmál, Mýra- og Borgarfjarðarsýsla
Undirritunardagur
12. mars 2026
Útgáfudagur
13. mars 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 248/2026
12. mars 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Hvalfjarðarsveit.
Torfholt, L240669, í landi Leirár.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti 11. mars 2026 óverulega breytingu á deiliskipulagi Torfholts í landi Leirár. Breytingin felst í auknu byggingarmagni gistihúsa, úr 35 m² í 50 m².
Deiliskipulagið hefur hlotið skipulagsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Hvalfjarðarsveit, 12. mars 2026.
F.h. Hvalfjarðarsveitar,
Jökull Helgason skipulagsfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 13. mars 2026