Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið (2012-2022)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Matvæli
Undirritunardagur
26. maí 2021
Útgáfudagur
11. júní 2021
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 689/2021
26. maí 2021
REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 167/2014 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 284/2011 um sérstök skilyrði og nákvæmar verklagsreglur vegna innflutnings á eldhússáhöldum úr polýamíð- og melamínplasti sem eru upprunnin í Alþýðuveldinu Kína og Hong Kong, eða send þaðan.
1. gr.
Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði, 2. gr. b, svohljóðandi:
Borðbúnaður, eldhúsbúnaður, önnur búsáhöld og baðbúnaður, úr plasti, sem hafa tollnúmer 3924.1090 og upprunnin eru í Alþýðuveldinu Kína eða yfirráðasvæði þess, skulu sæta sömu skilyrðum og takmörkunum sem fram koma í reglugerð (ESB) nr. 284/2011.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli, með síðari breytingum.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 26. maí 2021.
Kristján
Þór
Júlíusson
sjávarútvegs-
og
landbúnaðarráðherra.
Iðunn Guðjónsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 11. júní 2021