Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Húnabyggð

Málaflokkur

Skipulagsmál, Húnavatnssýslur

Undirritunardagur

29. maí 2026

Útgáfudagur

12. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 673/2026

29. maí 2026

AUGLÝSING

um breytingu á deiliskipulagi í Húnabyggð.

Breyting á deiliskipulagi íbúðarbyggðar við Sunnubraut á Blönduósi.

Sveitarstjórn Húnabyggðar samþykkti 10. febrúar 2026 breytingu á deiliskipulagi íbúðarbyggðar við Sunnubraut. Breytingin varðar fjölgun lóða við Sunnubraut. Bætt er við fimm lóðum við Sunnubraut, þar af ein fyrir íbúðarkjarna. Einnig eru gerðar lagfæringar á legu stígs sem liggur frá Sunnubraut að íþróttasvæði, mön við Sunnubraut er felld út og breyting gerð á bílastæðum við Holtabraut.

Málsmeðferð var í samræmi við 1. mgr 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Húnabyggð, 29. maí 2026.

Börkur Þór Ottósson, skipulags- og byggingarfulltrúi.

B deild — Útgáfudagur: 12. júní 2026

Tengd mál