Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál
Undirritunardagur
20. nóvember 2025
Útgáfudagur
28. nóvember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1276/2025
20. nóvember 2025
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 237/2014 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara.
1. gr.
Við 6. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/133 frá 28. janúar 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar starfrækslu þyrilflugna, sem er ekki í ábataskyni, við sjónflugsskilyrði, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 143/2025 frá 13. júní 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 59 frá 25. september 2025, bls. 60-65.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 93. og 115. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 20. nóvember 2025.
F. h. r.
Árni Freyr Stefánsson.
Vala Hrönn Viggósdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 28. nóvember 2025