Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar

Málaflokkur

Skipulagsmál, Reykjavík

Undirritunardagur

24. apríl 2020

Útgáfudagur

27. apríl 2020

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 388/2020

24. apríl 2020

AUGLÝSING

um breytingar á deiliskipulagi í Reykjavíkurborg.

Iðunnarbrunnur 11.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulags- og samgönguráð Reykjavíkur, með vísan til a-liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs, þann 15. apríl 2020, tillögu að breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdals vegna lóðarinnar nr. 11 við Iðunnarbrunn. Í breytingunni felst að taflan er leiðrétt þannig að í stað einbýlishúss stendur tvíbýlishús/einbýlishús til samræmis við deiliskipulag Úlfarsárdals, sem tók gildi 19. febrúar 2018. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Grjótháls 1-3.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti borgarráð Reykjavíkur, þann 2. apríl 2020, breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 1-3 við Grjótháls. Í breytingunni felst í meginatriðum stækkun á byggingarreit ofanjarðar um fjóra metra til suðurs, hækkun hæðar húss innan hans um 1,5 metra og hækkun á nýtingarhlutfalli lóðar úr 0,7 í 0,95. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Efstasund 80.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, þann 13. mars 2020, breytingu á deiliskipulagi reits 1.3 og 1.4, Sundin, vegna lóðarinnar nr. 80 við Efstasund. Í breytingunni felst að bæta við nýjum byggingarreit fyrir bílskúr á lóð. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Laugarásvegur 29-37.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, þann 17. apríl 2020, breytingu á deiliskipulagi Kleifarvegar 1.282.1 vegna lóðarinnar nr. 29‑-37 við Laugarásveg. Í breytingunni felst stækkun á bílgeymslulóð við enda Kleifarvegar. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Skarfagarðar 4.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, þann 3. apríl 2020, breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka – Klettasvæðis vegna lóðarinnar nr. 4 við Skarfagarða. Í breytingunni felst að bætt er við nýjum byggingarreit suðaustan við núverandi byggingarreit. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Funafold 42.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti borgarráð Reykjavíkur, þann 12. mars 2020, breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 42 við Funafold. Í breytingunni felst að stækka núverandi leikskóla við Funafold og gera þar sjö deilda leikskóla, stækka lóð leikskólans, fjölga bílastæðum, færa aðkomu að leikskólanum og færa til norðurs hjólastíg fyrir ofan núverandi lóðarmörk. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Bryggjuhverfi vestur, svæði 4.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, þann 17. apríl 2020, breytingu á deiliskipulagi Bryggjuhverfis vestur, svæði 4. Í breytingunni felst að heimila að fyrsta hæð í íbúðarhúsum á lóðum A og B fylgi götuhæð, eða þannig að ekki þurfi að lyfta þeim um 0,5-1,2 m þar sem ekki er reiknað með kjallara undir þeim. Byggingarreitir á lóð A lengjast og fara úr 31 og 32 metrum í 32,5 metra, svæði fyrir djúpgáma færist til á lóðum A og B. Hæð norðvestasta hússins breytist í 4 hæðir í stað 3-4 hæða og þakform breytist. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Seljavegur 1.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, þann 17. apríl 2020, breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits vegna lóðarinnar nr. 1 við Seljaveg. Í breytingunni felst að heimilt er að byggja nýbyggingu á lóð í stað þess að koma fyrir flutningshúsi. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Kennaraháskóli Íslands, reitur 1.254.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, þann 17. apríl 2020, breytingu á deiliskipulagi Kennaraháskóla Íslands vegna lóða A og B. Í breytingunni felst stækkun byggingarreita A2 og B1 ofan- og neðanjarðar vegna stigahúss ásamt því að byggingarreitum A6 og B6 er bætt við neðanjarðar og má því byggja samfelldan kjallara á milli A2 og A3 annars vegar og B1 og B2 hins vegar. Hámark byggingarmagns á reit A2 og B1 lækkar um það magn sem bætist við með nýjum byggingarreitum A6 og B6. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Grensásvegur 1.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti borgarráð Reykjavíkur, þann 12. mars 2020, breytingu á deiliskipulaginu „Skeifan – Fenin“ vegna lóðarinnar nr. 1 við Grensásveg. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni vegna uppbyggingar meðfram Skeifunni og breyting notkunar efri hæða fyrir íbúðir. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Lyngháls 1.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, þann 17. apríl 2020, breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 1 við Lyngháls. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit lóðarinnar. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Sjómannaskólareitur.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti borgarráð Reykjavíkur, þann 13. febrúar 2020, breytingu á deiliskipulagi fyrir Sjómannaskólareit 1.254.2. Í tillögunni felst uppbygging á lóð Sjómannaskólans fyrir allt að 150 nýjar íbúðir á svæðinu fyrir eldri borgara, námsmenn, félagsbústaði og hagkvæmt húsnæði (almennar íbúðir). Auk þess verður bætt við byggingarheimildum fyrir biskupsstofu á lóð Háteigskirkju. Reiturinn afmarkast af Háteigsvegi til suðurs, Vatnsholti til austurs, Skipholti til norðurs, Nóatúni og lóð Háteigskirkju til suðurs og vesturs. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Hafnarstræti 18.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, þann 17. apríl 2020, breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna lóðarinnar nr. 18 við Hafnarstræti. Í breytingunni felst að byggja einnar hæðar viðbyggingu við austurgafl hússins með þaksvölum. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, 24. apríl 2020.

Björn Axelsson.

B deild - Útgáfud.: 27. apríl 2020

Tengd mál